Sex af sjö spá KR-ingum Íslandsmeistaratitlinum - fyrsti leikur í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2014 09:30 Pavel Ermolinskij. Vísir/Daníel
Fréttablaðið fékk sjö reynda menn úr Dominos-deild karla til þess að spá um hvernig úrslitaeinvígi KR og Grindavíkur fari en fyrsti leikurinn er í DHL-höllinni í Frostaskjóli klukkan 19.15 í kvöld. Allir leikir úrslitaeinvígisins verða í beinni á Stöð 2 Sport. KR beið í fjóra daga til að fá að vita um mótherja sína en Grindavík tryggði sér sætið með sigri í oddaleik á móti Njarðvík. Þetta verður þriðja einvígi KR og Grindavíkur um titilinn en KR vann bæði 2000 (3-1) og 2009 (3-2). Grindavík hefur unnið titilinn tvö undanfarin ár en KR vann hann síðast vorið 2011. Sex af sjö spámönnum eru á því að KR verði meistari, allir nema Örvar Þór Kristjánsson fráfarandi þjálfari ÍR, en fjórir þeirra búast við að úrslitin ráðist í oddaleik eins og þegar Grindavík vann í fyrra. KR er með heimavallarréttinn og það lið hefur unnið titilinn undanfarin þrjú ár og alls fimm sinnum á síðustu sex árum. KR-ingurinn Pavel Ermolinskij fékk fjögur af sjö atkvæðum þegar spurt var um hvaða leikmaður verði kosinn bestur í úrslitaseríunni en liðsfélagar hans, Martin Hermannsson og Brynjar Þór Björnsson fengu eitt atkvæði hvor sem og Lewis Clinch hjá Grindavík.Spámenn Fréttablaðsins:Einar Árni Jóhannsson, Njarðvík: KR vinnur, 3-2 - Bestur: Brynjar Þór Björnsson, KR.Teitur Örlygsson, Stjörnunni: KR vinnur, 3-2 - Bestur: Pavel Ermolinskij, KR.Benedikt Guðmundsson, Þór Þorl.: KR vinnur, 3-1 - Bestur: Pavel Ermolinskij, KR.Ívar Ásgrímsson, Haukum: KR vinnur, 3-2 - Bestur: Pavel Ermolinskij, KR.Magnús Þór Gunnarsson, Keflavík: KR vinnur, 3-1 - Bestur: Martin Hermansson, KR.Örvar Þór Kristjánsson, ÍR: Grindavík vinnur, 3-2 - Bestur: Lewis Clinch, Grindavík.Ingi Þór Steinþórsson, Snæfelli: KR vinnur, 3-1 - Bestur: Pavel Ermolinskij, KR.
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira