Fulltrúar síðustu fjögurra Íslandsmeistaratitla með KR í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2014 10:00 Magni Hafsteinsson varð Íslandsmeistari með KR fyrir fjórtán árum. Vísir/Stefán
Grindvíkingar hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn undanfarin tvö tímabil og innan Grindavíkurliðsins er því mikil meistarareynsla en margir úr KR-liðinu hafa einnig unnið titilinn með sínu félagi á síðustu árum. KR og Grindavík mætast í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Dominos-deild karla í körfubolta en fyrsti leikurinn er í kvöld klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostaskjóli. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. KR-ingar hafa unnið fjóra Íslandsmeistaratitla á þessari öld og meðal leikmanna KR-liðsins í dag eru leikmenn úr öllum þessum fjórum meistaraliðum. KR vann Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2000, 2007, 2009 og 2011. Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði KR-liðsins, og Ólafur Már Ægisson hafa verið með þremur af þessum fjórum titlum, Brynjar í þremur síðustu en Ólafur öllum nema titlinum árið 2007. Ólafur Már var ásamt Magna Hafsteinssyni í Íslandsmeistaraliði KR fyrir fjórtán árum síðan en KR-ingar unnu þá sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í áratug. Fimm leikmenn KR-liðsins í dag voru með þegar KR vann síðast Íslandsmeistaratitilinn vorið 2011 en þar á meðal eru Pavel Ermolinskij og Martin Hermannsson sem hafa farið á kostum í þessu tímabili. Pavel Ermolinskij varð Íslandsmeistari síðasta tímabilið sem hann lék með KR fyrir tímabilið í ár en hann fór síðan í atvinnumennsku í Svíþjóð í tvö ár.Fulltrúar síðustu fjögurra Íslandsmeistaraliða KR eru í KR-liðinu í dagÚr Íslandsmeistaraliði KR 2000 Magni Hafsteinsson og Ólafur Már Ægisson.Úr Íslandsmeistaraliði KR 2007 Brynjar Þór Björnsson og Darri Hilmarsson.Úr Íslandsmeistaraliði KR 2009 Brynjar Þór Björnsson, Darri Hilmarsson, Helgi Már Magnússon og Ólafur Már Ægisson.Úr Íslandsmeistaraliði KR 2011 Brynjar Þór Björnsson, Jón Orri Kristjánsson, Martin Hermannsson, Ólafur Már Ægisson og Pavel Ermolinskij.
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Sjá meira