Handbolti

Naumur sigur hjá ÍR gegn Gróttu

Kristófer Fannar Guðmundsson, markvörður ÍR.
Kristófer Fannar Guðmundsson, markvörður ÍR.
ÍR mátti hafa mikið fyrir sigri á Gróttu í dag er liðin mættust í fyrsta leik í umspili um laust sæti í úrvalsdeild að ári.

ÍR vann leikinn með einu marki, 30-29, en framlengja varð leikinn. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 25-25.

Vinna þarf tvo leiki til þess að komast í úrslitaeinvígið. Stjarnan og Selfoss mætast í hinu undanúrslitaeinvíginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×