Fyrirsjáanlegar framfarir hjá Lotus

„E22 bíllinn er greinilega efnilegur jafnvel þótt við séum bara hægt og rólega að læra að nýta okkur það,“ sagði Chester.
„Í keppninni í Bahrain vorum við nær Mercedes, Williams og McLaren en við höfum verið áður. Munurinn á okkar keppnishraða annars vegar og Williams og McLaren hins vegar er hálf sekúnda og var meira en sekúnda í Sepang (Malasíu) svo við höfum náð góðum, stigvaxandi framförum,“ sagði tæknistjórinn.
Hann telur að brautin í Kína, muni henta Lotus bílnum mjög vel. Kínverski kappaksturinn er næst á dagskrá. Kappaksturinn fer fram 18. - 20. apríl.
„Hún ætti að vera betri en Bahrain. Bahrain var augljóslega aflbraut, eins og sást á uppröðun bílanna á rásröð. Kína hefur vissulega langan beinan kafla, en þar eru fleiri hægar og meðal hraðar beygjur en í Bahrain, svo það veitir okkur tækifæri til að reyna að komast nær toppnum,“ sagði Nick Chester.
Lotus liðið hefur enn ekki náð í stig á tímabilinu. Að loknum þremur keppnum í fyrra hafði liðið unnið eina og ekki klikkað á að lenda í stigasæti.
Ljóst er að mikið þarf að breytast svo liðið nái aftur á fyrri stall.
Tengdar fréttir

Upptökudagur hjá Lotus
Nýi bíll Lotus-liðsins ók um brautina í Jerez í dag. Tímasetningin vekur athygli vegna þess að æfingar hefjast ekki aftur fyrr en 19. febrúar og þá í Bahrein.

Renault-vélar í vanda í Malasíu
Fjórir bílar með Renault-vélar hættu keppni í Ástralíu vegna vélabilunar. Renault trúir því að fyrirtækið sé að ná árangri í átt að meiri áreiðanleika.

Bílskúrinn: Hvað er að frétta eftir Bahrain?
Breski ökumaðurinn Lewis Hamilton á Mercedes vann keppnina í Bahrain, liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sergio Perez á Force India varð þriðji. Við förum yfir málin í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Lotus tapaði á að sleppa Jerez
Nick Chester, tæknistjóri Lotus-liðsins, gerir ráð fyrir að liðið verði komið aftur meðal þeirra fremstu í þriðju keppni tímabilsins. Allt veltur á því að leysa vélavandamálin sem hrjá Renault-vélina sem er í Lotus-bílnum.

Renault uppfærslurnar virka
Pastor Maldonado ók Lotus bíl sínum einn hring á föstudag og tuttugu og einn hring á laugardag. Liðið var þá komið saman við auglýsingatökur á brautinni í Jerez á Spáni. Lotus hefur þar með notað þá tvo daga sem hvert lið má nota í auglýsingaskyni.