Þar spilaði sveitin sína útgáfu af þjóðlagi úr þáttunum, sem heitir The Rains of Castamere. Tilefnið var konunglegt brúðkaup Joffrey Baratheon og Margaery Tyrell, sem kallað er Fjólubláa brúðkaupið.
Hægt er að sjá atriðið úr þættinum í spilaranum hér fyrir ofan. Joffrey er þekktur fyrir það að vera skaphundur mikill og rekur hann sveitina af sviðinu þegar honum tekur að leiðast flutningurinn.
Meðlimir Sigur Rósar; Orri Dýrason, Georg Hólm og Jón Þór Birgisson, fóru til Króatíu á síðasta ári vegna gerð þáttanna. Höfundar þáttanna, David Benioff og Dan Weiss, réðu þremenningana því að þeir eru miklir aðdáendur sveitarinnar og hlustuðu á tónlist hennar við tökur þáttanna á Íslandi.
Stutt er síðan Sigur Rós fékk gestahlutverk í Simpsons-þættinum The Saga of Carl sem vakti mikla athygli.

Í þættinum sem sýndur var í síðustu viku mátti einmitt sjá atriði sem tekið var upp á Þingvöllum.
Kraftajötunninn Hafþór Júlíus Björnsson fer einnig með hlutverk í seríunni og birtist hann því væntanlega, eins og Sigur Rós, á sjónvarpsskjám út um allan heim á næstu vikum.
Mikil tenging hefur verið á milli Game of Thrones og þekktra tónlistarmanna. Sveitirnar The National og The Hold Steady hafa báðar átt lög í þáttunum og sömdu lög sérstaklega fyrir þá sem voru innblásin af skrifum George R.R. Martin. Þá léku Coldplay-trommarinn Will Champion og Gray Lightbody úr Snow Patrol aukahlutverk í þriðju seríu.
Game of Thrones-þættirnir eru frumsýndir á HBO í Bandaríkjunum á sunnudagskvöldum og sýndir á Stöð 2 degi seinna, á mánudagskvöldum klukkan 21.
Sigur Rós mætti á frumsýningu Game of Thrones í Bandaríkjunum á dögunum. Hér eru strákarnir með höfundi þáttanna, George R. R. Martin: