Bale hetja Real í bikar-Clásico Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. apríl 2014 21:21 Gareth Bale skoraði sigurmarkið. Vísir/Getty
Real Madrid varð í kvöld spænskur bikarmeistari í knattspyrnu þegar liðið vann erkifjendurnar í Barcelona, 2-1, í úrslitaleik Konungsbikarsins en leikið var á Mestalla-vellinum í Valencia. Real-menn, sem léku án Cristiano Ronaldo, voru betri til að byrja með og tóku forystuna strax á 11. mínútu þegar Argentínumaðurinn ÁngelDi María skoraði, 1-0. Börsungar sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik og jöfnuðu leikinn á 68. mínútu. Marc Bartra, miðvörðurinn ungi, skallaði þá knöttinn í netið eftir hornspyrnu frá vinstri, 1-1.Gareth Bale reyndist svo hetja Real Madrid en hann skoraði sigurmarkið á 85. mínútu eftir magnaðan sprett frá sínum eigin vallarhelmingi. Hann stakk Bartra af á sprettinum og komst alla leið inn á markteig þar sem hann renndi knettinum undir Pinto í marki Barcelona, 2-1. Brasilíumaðurinn Neymar fékk dauðafæri til að jafna metin á 90. mínútu en skot hans einn á móti markverði small í stönginni. Real Madrid er enn í baráttunni um tvo titla til viðbótar en eftir tapið gegn Granada um helgina lítur út fyrir að tímabilið verði titlalaust hjá Barcelona.Vísir/GettyVísir/Getty
Spænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira