Valsmenn fastir í Varmahlíð - búið að seinka leiknum aftur Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. mars 2014 13:58 Ólafur Stefánsson og lærisveinar hans gætu þurft að gista í Varmahlíð. Vísir/Daníel
Leik Akureyrar og Vals í 18. umferð Olís-deildar karla í handbolta sem átti að fara fram í KA-húsinu kl. 16.00 í dag hefur verið seinkað enn og aftur. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á fimmtudagskvöldið en var síðar frestað fram á föstudag og svo þar til dagsins í dag. Enn er möguleiki á að leikurinn verði spilaður en það stendur tæpt. Valsmenn eru komnir í Varmahlíð þar sem þeir eru búnir að leigja sér sumarbústaði. Þeir eru í óvissu um framhaldið en Öxnadalsheiðin verður ekki opnuð fyrr en seinna í dag. „Ég veit ekki hvað við verðum lengi hérna eða hvort við endum á því að gista. Heiðin á víst ekki að opna fyrr en eftir þrjá tíma,“ sagði Hlynur Morthens, markvörður Vals, í samtali við Vísi.Róbert Geir Gíslason, mótastjóri HSÍ, staðfesti í samtali við Vísi að leikurinn færi ekki fram kl. 16.00 þar sem heiðin opnar ekki fyrr en eftir þann tíma. Hann sagðist ætla vera í betra sambandi við Valsmenn upp á framhaldið og taka á endanum ákvörðun um hvort leikið yrði í kvöld eða á morgun. Nú þegar er búið að fresta leik Vals og KA/Þórs í Olís-deild kvenna sem átti að fara fram í Austurbergi í dag en norðankonur komast ekki til Reykjavíkur.
Olís-deild karla Mest lesið Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Fótbolti Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Sport „Ég hef ekkert að sanna“ Enski boltinn Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Fótbolti Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð Enski boltinn Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Fótbolti Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Formúla 1 Robertson sá um að hefna Fótbolti Fleiri fréttir KA upp um tvö sæti með algjörum risasigri Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Skoruðu tvö á síðustu mínútu og fóru upp fyrir Hauka Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Markaveisla þegar ÍBV vann silfurstrákana Uppgjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Tvær landsliðskonur urðu eftir heima vegna höfuðhögga Færeyingar unnu sterkan varnarsigur gegn Portúgal „Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ „Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Engin bikarþynnka hjá Haukum „Það var engin hætta“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sjá meira