Ítali ráðinn þjálfari kvennalandsliðsins í blaki Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. mars 2014 16:54 Capriotti mætir á bikarhelgina til að sjá stelpurnar. Vísir/Stefán
Daniele Mario Capriotti, 42 ára gamall Ítali, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari kvenna í blaki en samningurinn er til tveggja ára. Frá þessu er greint á vef blaksambands Íslands en Capriotti hefur um 20 ára reynslu af þjálfun á Ítalíu og starfar sem tæknilegur ráðgjafi blakliða í B-deildinni þar í landi. Hann hefur einnig mikla reynslu af þjálfun ungmenna og á marga titla að baki á þeim vettvangi, að því fram kemur á vef BLÍ. Capriotti er með hæstu þjálfaragráðu sem veitt er á Ítalíu og hefur kennt á fjölda námskeiða fyrir ítalska blaksambandið Samningar náðust milli BLÍ og Capriotti um liðna helgi og mun hann koma til Íslands um bikarhelgina 15.-16. mars nk. til að skoða leikmenn fyrir landsliðið. Verkefni landsliðsins á þessu ári er undankeppni EM smáþjóða í Laugardalshöll 6.-8. júní og er ljóst að ærið verkefni bíður hans í vor. „Það ríkir mikil ánægja með ráðningu Capriotti. Við teljum að þetta endurspegli metnað okkar fyrir hönd landsliðanna og við bindum mikla vonir við hans störf. Innan tíðar munum við greina frá ráðningu þjálfara fyrir karlaliðið en þau mál eru langt komin,“ segir StefánJóhannesson, formaður landsliðsnefndar BLÍ.
Íþróttir Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Fótbolti Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Íslenski boltinn „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti KA-menn brotlentu í Garðabæ Handbolti „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti Fleiri fréttir Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Sjá meira