Fyrsti leikurinn á milli eitt og tvö í sjö ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2014 06:00 Pálína Gunnlaugsdóttir sést hér búa sig undir að skora mikilvægustu körfuna í bikaúrslitaleik kvenna árið 2007. Vísir/Vilhelm
Snæfell og Haukar mætast í dag í úrslitaleik Poweradebikars kvenna í körfubolta en leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni og hefst klukkan 13.30. Bikarúrslitalið Snæfells og Hauka eru í tveimur efstu sætum Dominos-deildar kvenna og það hefur aðeins gert einu sinni á síðustu þrettán árum að tvö efstu liðin í deildinni mætist í bikarúrslitaleiknum. „Ég held að þetta verði hörkuleikur, einn flottasti bikarkvennaleikur sögunnar," sagði Pálína Gunnlaugsdóttir þegar íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins fékk hana til að spá fyrir um úrslit leiksins. Pálína spilaði einmitt lykilhlutverk þegar Haukar unnu Keflavík 78-77 í síðasta uppgjöri milli liða eitt og tvö í deildinni í bikarúrslitum en það er einn allra flottasti bikarúrslitaleikurinn. Pálína stal þá boltanum á úrslitastundu þegar staðan var jöfn, fór upp allan völl, skoraði og fékk víti að auki sem hún nýtti. Keflavík náði aldrei að jafna leikinn eftir það og Haukakonur tryggðu sér titilinn. Þetta er í sjötta sinn frá 1993 sem efstu tvö liðin þá stundina mætast í bikarúrslitunum og liðið í öðru sæti hefur aðeins unnið einn leik af fimm. KR vann þá Keflavík í úrslitaleiknum 2001 og Haukaliðið mun gera allt í dag til að leik það eftir.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira