Harmageddon

„Auðvitað er Hildur bara mennsk eins og við öll“

Andri Þór Sturluson skrifar
Hildur Lilliendahl
Hildur Lilliendahl
Harmageddon fór yfir Lilliendahl málið enda hefur það meira segja náð að stela senunni af skrípalátunum á Alþingi og mótmælum á Austurvelli.

Hlustendur hringdu inn og sögðu sitt álit. Það er ljóst að stór hluti fólks hefur orðið fyrir miklum vonbrigðum. Hildur hefur verið leiðandi í baráttunni gegn netníði og mörgum er brugðið þegar kemur í ljós að hún hefur sjálf stundað slíkt.

Ferill hennar á spjallborðinu Barnaland.is sem Nöttz er víst ekki til fyrirmyndar en oft myndast ákveðin stemming á spjallborðum sem utanaðkomandi geta ekki sett sig auðveldlega inn í.

Harmageddon leggur það til að fólk leiti sátta og taki fyrirgefningar- og afsökunarbeiðnum þegar þær eru settar fram.

Hægt er að hlusta hér.



×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.