Hannes: Viljum ráða nýjan þjálfara á næstu tveim vikum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 10. febrúar 2014 11:15 Hannes ásamt Peter Öqvist, fráfarandi landsliðsþjálfara. „
Þetta hefur legið í loftinu undanfarnar vikur en við vildum reyna það til fullnustu hvort þetta væri hægt,“ segir formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson, en í morgun var tilkynnt að Svíinn Peter Öqvist myndi láta af þjálfun íslenska karlalandsliðsins. „Eiginkona hans mun fæða þeirra þriðja barn eftir sex til átta vikur. Hann er mikið frá allan veturinn og langaði að vera heima hjá sér í sumar,“ segir Hannes. Samkvæmt heimildum Vísis þá er Öqvist þess utan vongóður um að fá landsliðsþjálfarastarfið í heimalandinu. Hann er einn af nokkrum sem koma til greina í starfið. „Við vissum strax í haust að það væru helmingslíkur á því að hann yrði áfram. Svona fór þetta og þá þarf að skoða framhaldið.“ Stjórn KKÍ mun hittast á miðvikudag og ákveða hvaða stefna verður tekin í framhaldið. „Við eigum eftir að ákveða hvort við viljum erlendan eða innlendan þjálfara. Við erum svolítið seinir á ferðinni og viljum ráða mann á næstu tveim vikum þannig að við gætum verið svolítið seinir að ráða erlendan þjálfara.“ Hannes vildi ekki gefa upp nein nöfn á mögulegum landsliðsþjálfurum enda væri ekkert ákveðið í þeim efnum. „Við höfum ekki rætt við neina á bak við tjöldin. Við höfum samt velt aðeins fyrir okkur nokkrum nöfnum en nú er næst á dagskrá að ræða við einhverja.“
Dominos-deild karla Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Fótbolti Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Tíu stoðsendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum Hvergi nærri hættur með KR „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Sjáðu fyrirliðann Tryggva taka við Evrópubikarnum „Þetta er smá spooky“ Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Wembanyama snéri aftur og átti stórleik „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Sjá meira