Segir Woody Allen hafa misnotað sig kynferðislega Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 2. febrúar 2014 08:45 Dylan Farrow í dag (t.v.) og með Allen árið 1992. vísir/samsett/getty
Dylan Farrow, dóttir bandaríska kvikmyndaleikstjórans Woody Allen, segist hafa verið misnotuð kynferðislega í æsku af leikstjóranum. Í opinskáu bréfi sem birt var á bloggvef New York Times í gær segir hún misnotkunina hafa staðið yfir frá því hún muni eftir sér og þar til hún varð sjö ára. Hún segir alvarlegasta atvikið hafa átt sér stað á heimili móður sinnar þegar hun var sjö ára. „Woody Allen leiddi mig upp á háaloft í húsinu okkar,“ segir Farrow í bréfinu. „Hann sagði mér að leggjast á magann og leika mér með leikfangalest bróður míns. Síðan misnotaði hann mig.“ Farrow lýsir öðrum atvikum og segir að hún hafi haldið að ofbeldið væri eðlilegt. „Ég hélt að svona sýndu feður dætrum sínum væntumþykju. En það sem hann gerði mér á háaloftinu var öðruvísi. Ég gat ekki haldið þessu leyndu lengur.“ Allen hefur verið giftur Soon-Yi Previn, ættleiddri dóttur Miu Farrow, frá árinu 1997.vísir/getty Málinu vísað frá Áralöngu ástarsambandi leikstjórans og kjörmóður Farrow, leikkonunnar Miu Farrow, lauk árið 1992 eftir að hún fann nektarmyndir sem hann hafði tekið af Soon-Yi Previn, tvítugri kjördóttur Farrow. Í kjölfarið viðurkenndi Allen að hann ætti í ástarsambandi við Previn. Við tóku langdregnar lagadeilur um forræði yfir börnunum þremur sem leikstjórinn og Farrow áttu saman; Dylan og drenginn Moshe, sem bæði voru ættleidd, og soninn Satchel. Farrow sakaði leikstjórann um að hafa misnotað Dylan en dómari vísaði málinu frá vegna ónógra sannana. Farrow fékk engu að síður forræði yfir börnunum þremur og Allen var meinað að hitta Dylan. Moshe mátti hann heimsækja undir eftirliti en Satchel, sem í dag kallar sig Ronan, sneri baki við föður sínum. Dylan Farrow segist ekki hafa gert sér grein fyrir afleiðingum þess að segja móður sinni frá atvikinu á háaloftinu. „Ég var látin rifja upp atvikið trekk í trekk fyrir framan marga mismunandi lækna til þess að sannreyna að ég væri ekki að ljúga. Ásakanir á hendur valdamiklum mönnum um kynferðisofbeldi eiga það frekar til að sigla í strand. Það voru sérfræðingar reiðubúnir að ráðast á trúverðugleika minn. Og það voru læknar reiðubúnir að afvegaleiða barn sem hafði verið misnotað.“ Þjáningin gerð verri af HollywoodFarrow segir það að Allen hafi komist up með verknaðinn hafa fylgt sér fram á fullorðinsár. „Ég var haldin sektarkennd yfir því að hafa leyft honum að vera nálægt öðrum litlum stúlkum. Ég var dauðhrædd við snertingu karlmanna. Ég þróaði með mér átröskun og fór að skera sjálfa mig. Þessi þjáning var gerð enn verri af Hollywood. Allir nema örfáir skelltu skollaeyrum við ásökununum. Flestum fannst auðveldara að láta sem ekkert hefði gerst. Að segja að enginn vissi í raun hvað hefði átt sér stað. Leikarar hylltu hann á verðlaunahátíðum, og hann var í sjónvarpi og tímaritum. Í hvert sinn sem ég sá andlit kvalara míns - á veggspjaldi, stuttermabol eða í sjónvarpinu - þurfti ég að fela ótta minn þar til ég gat farið í felur þar sem ég brotnaði niður.“ Parið árið 1988 með ættleidd börn sín tvö, Dylan og Satchel. Dylan situr í fangi föður síns.vísir/getty „Hver er uppáhalds Woody-Allen myndin þín?“ Farrow segir að í þetta sinn ætli hún ekki að brotna niður, þrátt fyrir að Allen hafi á dögunum fengið enn eina tilnefninguna til Óskarsverðlauna. „Aðrir þolendur kynferðisofbeldis hafa stutt við bakið á mér. Þeir hafa deilt með mér óttanum við að stíga fram, vera kallaður lygari, og vera sagt að minningarnar séu falskar. Þeir hafa gefið mér ástæðu til að rjúfa þögnina, þó ekki nema bara til að aðrir viti að þeir þurfi heldur ekki að þegja.“ Hún segir skilaboðin sem Hollywood sendir skipta máli fyrir þolendur ofbeldis og beinir orðum sínum að leikurum kvikmynda Allens. „Hvað ef þetta hefði verið barnið þitt? Cate Blanchett? Louis CK? Alec Baldwin? Hvað ef þetta hefði verið þú, Emma Stone? Eða þú, Scarlett Johansson? Þú þekktir mig þegar ég var lítil stúlka, Diane Keaton. Hefurðu gleymt mér?“ Farrow segir Allen vera lifandi dæmi um það hvernig samfélagið bregst þolendum kynferðisofbeldis og misnotkunar. „Ímyndaðu þér Woody Allen að leiða sjö ára dóttur þína upp á háaloft. Ímyndaðu þér að alla ævina verði henni óglatt við að heyra nafn hans nefnt. Ímyndaðu þér heim sem hyllir kvalara hennar. Ertu að ímynda þér það? Segðu mér þá, hver er uppáhalds Woody Allen-myndin þín?“
Mál Woody Allen Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Lífið Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira