Viðskipti erlent

Metfjöldi olíuleyfa gefinn út í Noregi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Tord Lien, olíu- og orkumálaráðherra Noregs.
Tord Lien, olíu- og orkumálaráðherra Noregs. Mynd/Reynir Jóhannesson.
Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Tord Lien, tilkynnti í gær um að 65 nýjum sérleyfum til 48 olíufélaga hefði verið úthlutað til olíuleitar og vinnslu á norska landgrunninu. Aldrei fyrr í nærri hálfrar aldar sögu norska olíuævintýrisins hefur svo mörgum sérleyfum verið útdeilt til svo margra félaga.

Flest leyfin voru gefin út til leitar í Norðursjó, eða 38 talsins, í Noregshafi voru gefin út 19 leyfi og í Barentshafi 8 leyfi. Athyglisvert er að færeyska félagið Faroe Petroleum fékk flest leyfin, tíu talsins, jafnmörg og norska félagið Statoil og breska félagið Centrica fengu. Annað færeyskt félag, Atlantic Petroleum, fékk tvö leyfi.

Íslenska félagið Eykon Energy var í hópi umsækjenda en náði ekki að ljúka vottunarferli til starfa í Noregi. Samstarfsfélög Eykons fengu hins vegar úthlutað leyfi og er gert ráð fyrir að Eykon gangi inn í þau, þegar vottun er fengin, að sögn Gunnlaugs Jónssonar, framkvæmdastjóra Eykons.

Tord Lien lýsir mikilli ánægju með þessa úthlutun, enda sé hún nýtt met, bæði í fjölda leyfa og fjölda félaga. Stigið sé stórt skref að frekari könnun þeirra svæða sem mest eru rannsökuð í lögsögu Noregs. Þetta sýni að norska ríkisstjórnin standi við loforð sín, stefnan sé að áfram verði haldið uppi háu framleiðslustigi í norska olíuiðnaðinum.

Leyfisúthlutunin sætir gagnrýni frá SV, systurflokki Vinstri grænna í Noregi. Talsmaður flokksins segir að ríkisstjórn Ernu Solberg gangi í þveröfuga átt við það sem rauðgræna ríkisstjórnin gerði, að gera norskt samfélag minna háð olíunni. Þessi aukning gangi jafnframt gegn sjónarmiðum loftslagsverndar og norsks efnahagslífs.

Kort sem sýnir leyfin má sjá á vef olíu- og orkumálaráðuneytis Noregs.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×