Harmageddon

Magnus Carlsen tefldi við Bill Gates

Andri Þór Sturluson skrifar
Það tók Magnus Carlsen aðeins um 70 sekúndur að sigra auðjöfurinn Bill Gates í skák en þeir kepptu í norskum spjallþætti í gær. Það er sirka sami tíminn og það tók fólk að átta sig á því að Windows 8 væri drasl.

Bill átti aldrei séns og vissi það vel en engu að síður varð hann hissa hversu fljótlega honum var pakkað saman. Magnus sagði Bill vel geta orðið ágætan í skák með smá æfingu en það er líklegast bara svona eitthvað sem maður segir til að láta lúserum líða betur.



×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.