Sannleikurinn: Forsetinn notaði orðið samstaða 17 sinnum í ávarpi sínu Andri Þór Sturluson skrifar 2. janúar 2014 12:44 Öðrum samstöðu Norðurslóða landsins voru algengustu orðin í ávarpi forsetans. /Þórlaug Agústsdóttir
Samstaða íslensku þjóðarinnar var Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, ofarlega í huga í nýársávarpi hans. Hann notaði orðið 17 sinnum. Orðið hefur ekki verið notað jafn oft í ræðu síðan í seinni heimstyrjöldinni. Ólafur hvatti landsmenn til að standa saman og sagði að fátækt væri smánarblettur á íslensku samfélagi. Þegar hann talar um landsmenn á hann þó ekki við konuna sína sem flutti lögheimili sitt til Bretlands á seinasta ári og þarf því ekki að borga skatta hér af auðæfum sínum. Ef Dorrit myndi greiða skatta hér á landi, verandi nú forsetafrú Íslands og með ríkari konum Bretlands, væri hægt að segja að forseta Íslands væri alvara þegar hann talar um samtöðu við þjóðina. Forsetahjón sem koma sér hjá því að borga skatta hér á landi eru varla að sýna neina samstöðu með þjóðinni.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu þar sem ríkir góð samstaða um að pönkast í forsetanum.
Harmageddon Mest lesið Ný plata frá Strigaskóm nr. 42 er komin út Harmageddon Endaþarmur evrópskar myndlistar? Harmageddon Sannleikurinn: Ákæruvaldið reyndi að fá barn dæmt fyrir að svíkjast um að stunda vændi Harmageddon Fimm verstu handboltarokklögin Harmageddon Ísland í röngu tímabelti Harmageddon „Ég geri þá kröfu að þú hleypir mér héðan út!“ Harmageddon Logi Bergmann á sviði með Iron Maiden Harmageddon Sannleikurinn: Menn með milljón á mánuði hækkuðu lægstu laun um þúsundkalla Harmageddon Við erum öll stjörnuryk Harmageddon „Besta veganesti sem hægt er að gefa barni að biðja með því“ Harmageddon