Fyrsta þrenna Alexis Sánchez fyrir Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2014 14:30 Mynd/NordicPhotos/Getty
Barcelona er komið aftur á toppinn í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 4-0 heimasigur á Elche í dag. Sílemaðurinn Alexis Sánchez skoraði sína fyrstu þrennu fyrir Barcelona en hann hefur verið hjá félaginu í þrjú ár. Lionel Messi er byrjaður að æfa á ný með Barcelona en hann spilaði ekki leikinn í dag. Það kom ekki að sök og Börsungar stóðust vel pressuna frá Atlético Madrid sem tók af þeim toppsætið í gær. Barcelona og Atlético eru með jafnmörg stig en Barca er með betri markatölu. Alexis Sánchez skoraði fyrsta markið á sjöundu mínútu eftir sendingu frá Jordi Alba og Cesc Fàbregas lagði síðan upp mark fyrir Pedro níu mínútum síðar. Xavi fékk kjörið tækifærið til að skora í leiknum en hann skaut framhjá úr vítaspyrnu á 48. mínútu en Fàbregas fiskaði vítið. Alexis Sánchez skoraði síðan tvö mörk með sex mínútna millibili í seinni hálfleik en seinna markið skoraði hann beint úr aukaspyrnu. Alexis Sánchez er nú kominn með 11 mörk í 14 deildarleikjum með Barcelona á tímabilinu en hann skoraði 8 deildarmörk á öllu tímabilinu í fyrra.Mynd/NordicPhotos/GettyFyrsta mark Alexis Sánchez í leiknum.Mynd/NordicPhotos/GettyAlexis Sánchez skorar sitt annað mark í leiknum.Mynd/NordicPhotos/Getty
Spænski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Fleiri fréttir Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Barcelona - Athletic | Fyrsti leikur Rodri fyrir Börsunga Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjá meira