Sannleikurinn: Sjúklingur tafði mikilvæga ostasendingu Snær Blær skrifar 7. janúar 2014 22:08 „Koma svo, drífa sig. Ég er með 500 kíló af osti hérna sem er ekki í kæli!“
Mikilvæg ostasending fyrir Bónus er sögð hafa þurft að bíða í klukkustund á Egilstöðum eftir flugi á vegum Mýflugs en flugvélin tafðist þar sem verið var að flytja einhvern sjúkling. Þetta kemur fram í tölvupósti sem maður sem starfaði hjá Mýflugi sendi árið 2006. „90 kílóa sjúklingur og tveir læknar töfðu sendingu af osti til Bónus sem lá mjög á. Alltaf gott að vera á sérútbúinni sjúkraflugvél eða hitt þó. Sérstaklega fyrir ostinn frá Mjólkusamsölunni sem beið í klukkustund á Egilsstöðum meðan eitthvað helvítis sjúkraflaug stóð yfir. Það var ekki bara tankað á Akureyri heldur hvarf flugstjórinn lengi að útbúa „flugplan“. Man ekki tímann, ef til vill 40-60 mínútur. Er viss um að hann hafi stolist í ostinn.“ Úr tölvupósti eftir sjúkraflug á árinu 2006.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu þar sem mjólkurvörur hafa alltaf forgang.
Harmageddon Mest lesið Segir Kristján Loftsson vera bæði hrokafullann og sjálfumglaðann Harmageddon Hannes Smárason kominn aftur í erfðabransann Harmageddon Nine Inch Nails: Sjálfsmorð með vott af bjartsýni Harmageddon Íslendingurinn sem er að slá í gegn í Dexter Harmageddon Ræða Martin Luther King framkallar enn gæsahúð Harmageddon Átökin verði staðbundin ef til þeirra kemur Harmageddon Queen Tora Victoria Harmageddon Elektrótónlist með sprengjuleitarvélmenni Ríkislögreglustjóra Harmageddon Vala Grand trúlofuð á ný Harmageddon Sannleikurinn: Stöðumælaverðir segja stöðuna aldrei hafa verið eins slæma Harmageddon