Þá var allt svo rosalega rómantískt Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. nóvember 2013 12:00 „Það sem ég vil miðla með sýningunni er að fólk velti fyrir sér hugmyndum sínum um ástina,“ segir Jenný Lára. Mynd/Úr einkasafni
Í Elska – einleikur dregur Jenný Lára Arnórsdóttir sannar ástarsögur okkar tíma fram í dagsljósið. Hún rekur hugmyndina að verkinu til námskeiðs í sagnalist hjá Benna Erlings og Charlottu Böving sem báðu hana að finna sögur af forfeðrum og -mæðrum. „Ég fór til ömmu fyrir norðan og hún sagði mér hvernig langamma og langafi kynntust,“ rifjar hún upp. Hún kveðst líka oft hafa heyrt ömmu sína tala um afa. „Þá var allt svo rosalega rómantískt. Ég fór að pæla í hvort fólk í gamla daga hefði ekki gengið í gegnum einhverja erfiðleika í samböndum til að komast á þann stað að muna bara það góða og hvort viðhorf okkar til ástar hefði eitthvað breyst í gegnum tíðina.“ Hver skyldi niðurstaðan vera? „Hugmyndir okkar um ástina hafa breyst, þar koma bíómyndir og samfélagsbreytingar til en það virðist alltaf vera sama formúlan sem virkar,“ lýsir Jenný og til að halda spennunni vill hún ekki gefa þá formúlu upp í þessu litla viðtali. „Það sem ég vil miðla með sýningunni er að fólk velti fyrir sér hugmyndum sínum um ástina,“ segir hún. „Og hvernig það sjálft tekst á við hana.“Sex sýningar eru fyrirhugaðar í Þingeyjarsýslu á tímabilinu frá 6. til 14. desember, sú fyrsta í Safnahúsinu á Húsavík.
Menning Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Fleiri fréttir Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira