Byltingin sem tókst Guðmundur Andri Thorsson skrifar 11. nóvember 2013 07:00 Hlakka til að lesa bækur þeirra Steingríms J. og Össurar. Bókarformið skapar þess háttar nálægð milli þess sem skrifar og þess sem les að þegar vel tekst til myndast sérstakt trúnaðarsamband þarna á milli. Og stjórnmálamaðurinn fær þá áheyrn hjá hinum almenna lesanda sem hann nær ekki með öðru móti.„Að kvaka satt“ Nálægð við atburði of mikil, segja sumir og aðrir benda á að hér séu stjórnmálamenn að reyna að gera hlut sinn sem bestan frammi fyrir Sögu, þeirri dyntóttu gyðju. Það má vera en rýrir í sjálfu sér ekki þessar bækur – öðru nær – þetta eru menn sem tóku þátt í tilteknum sögulegum atburðum, búa yfir ákveðinni vitneskju um það sem fór fram og hafa fullkomlega eðlilega þörf fyrir að deila henni með öðru fólki. Það er ekki þar með sagt að við sem lesum þurfum að veita einhvers konar aflausn að lestrinum loknum. En fleiri gamlir stjórnmálamenn mættu taka sér þetta til fyrirmyndar – að skrifa bók. Þannig á maður að „skrifa söguna“. Það er svo annað mál að sagnfræðingar eiga eftir að moða úr þessum heimildum þegar þeir fara að leggja mat sitt á þá viðburði sem þar segir frá. Sannleikurinn er heldur ekki einn og endanlegur. Við getum ekki bent á hann og sagt: Þarna er hann! Hann er ekki áþreifanlegur. Við getum ekki horft á hann hengdan upp á vegg af einhverjum sem sá hann og á hann. Þótt tveir plús tveir séu víst alltaf fjórir að sögn þeirra sem gerst til þeirra mála þekkja og þar með sé sennilega til algildur mælikvarði um sumt – þannig lagað – er ekki þar með sagt að öll svið tilverunnar sé hægt að skoða einungis í þeim mælikvarða og fyrirbærin séu alls staðar annaðhvort sönn eða ósönn. Sannleikurinn birtist stundum í margvíslegum ljósbrotum. Eða eins og séra Jón Prímus segir í Kristnihaldinu í einni af hinum óviðjafnanlegu samræðum þeirra Umba: „Það er gaman að hlusta á fuglana kvaka. En það væri annað en gaman ef fuglarnir væru einlægt að kvaka satt.“„Aftur á móti var annað stríð…“ Sem sagt gott. En þetta er ekki eina bókin sem nú kemur út og varðar ráðherra í síðustu ríkisstjórn. Jónína Leósdóttir hefur skrifað bók um samband sitt við Jóhönnu Sigurðardóttur og með fullri virðingu fyrir hæstvirtum samráðherrum hennar sem deila nú með okkur upplifunum sínum þá er ég ekki frá því að bók Jónínu sé í raun og veru pólitískasta bókin af þessum þremur. Hún segir söguna af því hvernig þessar tvær konur urðu hluti einhverra merkilegustu og ánægjulegustu þjóðfélagsbreytinga seinni tíma – og loks um síðir hálfnauðug táknmynd þeirra víða um lönd; tvær konur sem vildu helst bara vera í friði með sitt. Þetta er byltingarsaga: þær Jóhanna og Jónína eru hluti af byltingunni sem tókst. Þessi bylting fór fram utan sviðs hinna hefðbundnu stjórnmála. Þetta var bylting ástarinnar. Bylting einkalífsins, bylting hugarfarsins. Bylting viðhorfanna til náungans, bylting olnbogarýmisins, umburðarlyndisins og víðsýninnar, bylting kynfrelsisins, bylting hinnar heilbrigðu sjálfsmyndar þess sem elskar einstaklinga af sama kyni. Þessi bylting gerðist með hægð og án strits og hún varð vegna þrautseigju baráttufólks sem aldrei missti sjónar á markinu; hún á sínar hetjur og sína píslarvotta – karla og konur sem þorðu að bjóða almenningsálitinu byrginn og standa með sjálfum sér og sínu frammi fyrir öllum fordómstólum. Hún smaug inn í þjóðfélagið gegnum fjölskyldurnar, einstaklingana, umlukti smám saman okkur öll því að hvernig er annað hægt en að hrífast með þegar fólk elskar og þráir það eitt að fá að elska? Berst fyrir réttinum til ástarinnar? Þær Jóhanna og Jónína eru í hópi þeirra fjölmörgu sem notið hafa góðs af þessari hugarfarsbyltingu. En ekki bara þær og ekki bara samkynhneigt fólk almennt heldur hefur gjörvallt samfélagið orðið betra: þessi hugarfarsbylting hefur opnað augu fólks fyrir því að ekki er til ein og alrétt formúla fyrir lífstíl. Í bók sinni segir Jónína frá sambandi tveggja kvenna sem þróast frá því að vera pukur í einni af einangruðustu og fámennustu borgum Evrópu og til þess að þessar konur fara um heiminn, hjón í allra augsýn, og eru fjölmörgu samkynhneigðu fólki mikilvægar fyrirmyndir: verða einhverjar sjáanlegustu samkynhneigðu konur í víðri veröld. Þetta er stökk fyrir tvær hlédrægar konur sem mann næstum sundlar yfir þegar maður hugsar út í það. Auðvitað er ýmislegt sem enn þarf að laga í réttindamálum samkynhneigðra en það er ágætt að muna eftir því í öllu bölæðinu að sumt hefur tekist nokkuð vel hér. Þessi bylting tókst og hana þarf að færa á næsta stig, sem er að Íslendingar fari almennt að bera meiri virðingu fyrir ólíku lífsvali hver annars, varðandi búsetuhætti og lífsmáta og hætti að umgangast hver annan eins og systkini sem hatast. Við Íslendingar erum upp til hópa vænsta fólk sem vill náunganum vel – líka stjórnmálafólkið okkar og þingmennirnir sem við skulum endilega hætta að grýta – en eitthvað í stjórnmálakúltúr okkar er hins vegar þess eðlis að hinir neikvæðari eiginleikar virðast stundum nær allsráðandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Andri Thorsson Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar