Gagnrýni

Tveir heimar mætast á töfrandi hátt

Freyr Bjarnason skrifar
Samaris hefur gengið allt í haginn síðan hún vann Músíktilraunir árið 2011.
Samaris hefur gengið allt í haginn síðan hún vann Músíktilraunir árið 2011. fréttablaðið/valli
Tónlist. Samaris. Samaris. 12 Tónar

Hljómsveitinni Samaris hefur gengið allt í haginn síðan hún vann Músíktilraunir árið 2011.

Hún hefur gefið út EP-plöturnar Hljómar þú og Stofnar falla, fengið góða útvarpsspilun, spilað á Sónar-hátíðinni (bæði í Reykjavík og í Barselóna) og nýlega gerði hún útgáfusamning við breska fyrirtækið One Little Indian.

Þessi nýja plata er einmitt fyrsta útgáfa Samaris hjá fyrirtækinu í samstarfi við 12 Tóna og hefur að geyma EP-plöturnar tvær, auk fjögurra endurhljóðblandana, en samningurinn við One Little Indian hljómar upp á að minnsta kosti tvær breiðskífur til viðbótar með nýju efni.



Öll þessi velgengni tríósins kemur ekki á óvart þegar hlustað er á þennan nýja grip. Klarinettleikur Áslaugar Rúnar Magnúsdóttur og raftaktar Þórðar Kára Steinþórssonar blandast fullkomlega saman við seiðandi rödd Jófríðar þannig að úr verður gullfalleg tónlist. Í raun mætast tveir heimar á plötunni. Annars vegar söngstíll Áslaugar Rúnar og góðir textarnir sem byggja á gömlum íslenskum grunni og hins vegar nútímalegir raftaktarnir.



Endurhljóðblönduðu lögin eru áhugaverð, sérstaklega þó Viltu vitrast í meðferð Futuregrapher og Stofnar falla sem Subminimal hristir upp í með hröðum trommutakti.

Þrátt fyrir að platan sé þrískipt hljómar hún vel sem ein heild og ætti enginn tónlistaráhugamaður að vera svikinn af þessu eðal, rammíslenska rafpoppi.



Niðurstaða: Töfrandi rammíslenskt rafpopp frá hinni stórefnilegu Samaris.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.