Hreint vatn er ekki sjálfsagt mál Ólafur Þ. Stephensen skrifar 28. mars 2013 06:00 Við Íslendingar tökum hreinu drykkjarvatni gjarnan sem algjörlega sjálfsögðum hlut. Fáar þjóðir búa þó við önnur eins forréttindi og við í þeim efnum; að úr krönum í borgum og bæjum komi tandurhreint og ómeðhöndlað hágæðavatn. Víðast hvar er raunveruleikinn allt annar. Við umgöngumst hins vegar ekki þessa auðlind okkar, hreina vatnið, af tilhlýðilegri virðingu og varúð. Í síðasta helgarblaði Fréttablaðsins var úttekt á ýmsum fyrirhuguðum framkvæmdum á jaðri vatnsverndarsvæðis Reykvíkinga. Á Hólmsheiði á að byggja fangelsi og hugmyndir eru um að færa innanlandsflugvöllinn þangað. Áform eru um að stækka og efla skíðasvæðið í Bláfjöllum, sem gæti fjölgað mjög ferðamönnum sem þar eiga leið um. Stórtækustu plönin eru um uppbyggingu ferðaþjónustu í Þríhnúkagíg, sem hundruð þúsunda gætu heimsótt á ári hverju. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og svokölluð framkvæmdastjórn um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu (FVH) hafa verulegar áhyggjur af þessum áformum og stórauknum ferðamannastraumi um svæði sem á að vera helgað vatnsvernd. Guðmundur H. Einarsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogs og formaður FVH, varaði í samtali við Fréttablaðið sterklega við sofandahætti í vatnsverndarmálum. Framkvæmdastjórnin telur nauðsynlegt að gera heildstæða samgönguáætlun um Bláfjallasvæðið áður en hægt sé að fallast á uppbyggingu þjónustu fyrir hundruð þúsunda ferðamanna. Bláfjallavegurinn standist engar öryggiskröfur, en olíumengunarslys vegna til dæmis rútu sem ylti út af veginum er talið einn helzti áhættuþátturinn sem ógnar vatnsbólum Reykvíkinga. „Ef það verður olíumengunarslys, og það þarf ekki að vera stórvægilegt, eru vatnsbólin farin á stundinni,“ segir Guðmundur. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gengur enn lengra og telur að jafnvel þótt vegurinn verði bættur verði hann alltaf áhættuþáttur vegna legu og veðurfars á svæðinu. Huga þurfi að samgöngumátanum og setja spurningarmerki við að allir aki á einkabílum upp í Bláfjöll til að njóta útivistar. Samkvæmt svörum Vegagerðarinnar við fyrirspurnum Fréttablaðsins eru engar áætlanir um að byggja upp Bláfjallaveginn og óljóst er hvernig á að bæta aðgengi ferðamanna að Bláfjallasvæðinu og Þríhnúkagíg. Þetta mál er eitt dæmið um ósamkvæmnina og hugsunarleysið sem einkennir gullgrafarahugsunarhátt þeirra sem vilja moka sem flestum ferðamönnum inn í landið sem allra fyrst. Betri nýting á skíðasvæðinu í Bláfjöllum er frábær hugmynd, sömuleiðis að opna undur Þríhnúkagígs fyrir ferðamönnum. En við getum ekki bara vaðið áfram án þess að huga að afkastagetu og öryggi samgöngumannvirkjanna, hvað þá öryggi neyzluvatns höfuðborgarinnar. Eða hvað myndi það gera fyrir ímynd Íslands sem ferðamannalands ef mengunarslys yrði á Bláfjallasvæðinu sem þýddi að höfuðborgarbúar og gestir þeirra yrðu að kaupa vatn á flöskum? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðunargreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið Ég hef borgað í mörg ár, samt skulda ég meira Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Fólk sem treystir ekki þjóð til að hafa vit fyrir sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun Inga Sæland og sjálfstæðið Gunnar Ármansson Skoðun Við slettum öll einhvern tíma Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hagfræðileg brenglun í lagatextanum um verðtryggingu Örn Karlsson Skoðun Að „kíkja í pakkann“ sem er nú þegar opinn Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Af ávöxtunum skulum við þekkja þá Guðröður Atli Jónsson Skoðun Menn sem hata konur Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun
Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun