Frumsýningu Falsks fugls frestað í annað sinn 25. febrúar 2013 20:00
Búið er að fresta frumsýningu kvikmyndarinnar Falskur fugl í annað sinn, eða til 19. apríl. Upphaflega átti að frumsýna myndina 25. janúar en henni var svo frestað til 22. febrúar. Um þriggja mánaða seinkun er því að ræða frá upphaflegri áætlun. Aðspurður segir handritshöfundurinn Jón Atli Jónasson ástæðuna fyrir frestuninni þá að eftirvinnslan hefur dregist á langinn og vilja menn hafa alla hluti á hreinu áður en myndin fer á hvíta tjaldið. „Þetta er ekkert óeðlilegt. Djúpinu var oft frestað því það þurfti að hanga betur yfir henni," segir Jón Atli, sem skrifaði einnig handritið að Djúpinu ásamt Baltasar Kormáki. „Þetta er lítil mynd og menn eru að gera þetta svolítið sjálfir." Leikstjóri Falsks fugls er Þór Ómar Jónsson og með aðalhlutverkið fer Styr Júlíusson sem vandræðagemlingurinn Arnaldur. Myndin er byggð á samnefndri bók Mikaels Torfasonar frá árinu 1997. Davíð Guðbrandsson og Alexía Björg Jóhannesdóttir leika foreldra Arnalds. Meðal annarra leikara eru Rakel Björk Björnsdóttir, Aron Brink, Ísak Hinriksson og Krissi Haff. Kvikmyndatökumaður er Christoph Nicolaisen sem tók upp stuttmyndina Toyland sem vann Óskarsverðlaunin 2009. Þór Ómar kynntist honum þegar þeir störfuðu saman við gerð lottóauglýsingar í Þýskalandi.
Menning Mest lesið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Ekki vottur af vöðvabólgu Lífið Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira