Gróf aðför RÚV að íslensku samfélagi
Samkvæmt lögum og reglum um starfsemi RÚV ber ríkisfjölmiðlunum skylda að standa vörð um íslenska tungu og menningu. Lögin eru reglulega brotin af RÚV og mjög gróflega sl. gamlárskvöld með áramótaskaupi sem fór út yfir öll landamæri friðar og velsæmis. Með útsendingunni braut RÚV m.a. 1. gr. laga um Ríkisútvarpið og 27. gr. fjölmiðlalaga auk fleiri greina almennra hegningarlaga.
Í áramótaskaupi RÚV 31. desember var nauðgurum gert hátt undir höfði og þeim kennt að kaupa tjald yfir glæpi sína. Ofbeldi lyft hæðum hærra og áhorfendum kennt að bregðast við þjóðfélagsgagnrýni með hnefaskaki. Beinlínis var sýnt hvernig slá skal niður mann og lagt til að skjóta annan með haglabyssu. Þá var forseti þjóðarinnar sýndur sem ofbeldisseggur og klappað fyrir. Aldraðir og öryrkjar voru svívirtir. Lög og regluverðir lítilsvirtir. Fjöldamorð sýnt sem eðlilegur verknaður í baráttu um peningavöld. Blaðið sem heldur úti sora íslenskrar blaðamennsku og tungu fékk reglubundin auglýsingainnskot.
Samfélag ofbeldis
Viljum við Íslendingar samfélag ofbeldis þar sem skólabörn eru murkuð niður af fjöldamorðingjum? Þar sem tugir þúsunda manna eru limlestir og drepnir af tilefnislausu á almannafæri á hverju ári? Slíkt samfélag er nú að finna í uppsprettu ofbeldismyndanna, í Bandaríkjunum. Í Chicago jókst ofbeldið um 50% á liðnu ári. Í þessari einu borg voru 532 drepnir og tugir þúsunda sárir þetta árið. Ofbeldið er orðið svo samofið samfélaginu að á síðustu tíu árum hefur helmingi fleira fólk verið drepið í götum Chicago en bandarískir hermenn í Afganistan á sama tíma. Tugir manns eru drepnir í Bandaríkjunum á hverjum einasta degi og þykir varla fréttnæmt lengur. Ekki er liðinn mánuður frá þjóðarsorg vegna fjöldamorðs vestan við okkur, en þar eru að meðaltali um tuttugu fjöldamorð á hverju ári. Austan okkar eru nokkrar vikur síðan hjúkrunarkona framdi sjálfsmorð eftir aðför ósmekklegra fjölmiðlaskrípa. Viljum við stýra íslensku friðarsamfélagi í þessi spor?
Friður 2000 hefur fylgst með þessari þróun um árabil. Við framleiddum og afhentum RÚV fyrir mörgum árum íslenskar stuttmyndir gegn ofbeldi og báðum um að þær yrðu sýndar á undan kvikmyndum og þáttum sem innihalda ofbeldi. Eftir nokkrar birtingar tók RÚV þær úr birtingu og í tíð Páls Magnússonar sem útvarpsstjóra virðist fjölmiðillinn ekki sjá sér fært að birta slíkar upplýsingar til verndar íslenskum börnum. Engin slík viðvörun var birt á undan orðljótu, klámfengnu og ofbeldishneigðu áramótaskaupi sem átti ekkert erindi inn á fjölskylduskemmtun. Við höfum hingað til getað skemmt okkur yfir grínþáttum án slíks viðbjóðs sem hér var troðið ofan í þjóðina.
Í kjölfar þess sem nú hefur gerst hjá RÚV um þessi áramót er nauðsynlegt að stokka upp hjá ríkisfjölmiðlunum. RÚV hefur algerlega brugðist hlutverki sínu og ýtir nú undir að hér rísi ofbeldisþjóðfélag í stað þess að standa vörð um íslenska friðarmenningu. Núverandi stjórnendur verða að víkja sjálfviljugir eða með valdboði. Hér með er skorað á Fjölmiðlanefnd að taka þetta mál til umfjöllunar. Skorað er á Pál Magnússon og aðra sem hafa komið að birtingu þessa efnis hjá RÚV að taka pokann sinn. Þá er athæfið hér með kært til Lögreglustjórans í Reykjavík sem brot á almennum hegningarlögum m.a. kafla XIII, XVIII, XXII, XXV og vakin athygli á því að við brotunum er fangelsisvist.
Skoðun
Annars konar skoðun á hinu ósýnilega í lífi fólks
Matthildur Björnsdóttir skrifar
Lýðræðið í hættu – stjórnmálaflokkar án lýðræðislegrar uppbyggingar
Svanur Guðmundsson skrifar
Ögurstund í Seyðisfirði: Áskorun til nýrrar ríkisstjórnar
Árni Finnsson,Benedikta Guðrún Svavarsdóttir,Elvar Örn Friðriksson,Guðrún Óskarsdóttir,Jón Kaldal,Rakel Hinriksdóttir,Snorri Hallgrímsson,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Þú mátt nauðga ef einhver karl á internetinu leyfir þér það
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Pólitíkin þá og nú
Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir skrifar
Þar lágu Danir í því: Stórveldi eiga hagsmuni, ekki vini?
Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Gagnlegar símarettur
Davíð Már Sigurðsson skrifar
Réttindagæsla fatlaðs fólks á valdi þekkingarleysis
Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar
Gerviverkalýðsfélagið Efling
Aðalgeir Ásvaldsson skrifar
Áhugamönnum um hagræðingu fjölgar
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skiptir stærðin máli? Litháenskir sérfræðingar á Íslandi: Eining og samstarf
Inga Minelgaite skrifar
Sorg barna - fyrstu viðbrögð barna við missi
Matthildur Bjarnadóttir skrifar
Með styrka hönd á stýri í eigin lífi
Árni Sigurðsson skrifar
Hjólað inní framtíðinna
Búi Bjarmar Aðalsteinsson skrifar
Framsækin ríkisstjórn í umhverfis- og auðlindamálum: Nýi stjórnarsáttmálinn.
Stefán Jón Hafstein skrifar
Hugvíkkandi meðferðir eru fortíð okkar, nútíð og framtíð
Sara María Júlíudóttir skrifar
Komdu út að „Vetrar-leika“ í Austurheiðum Reykjavíkur
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar
Upprætum óttann við óttann
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar
Hér er kona, um konu…
Vilborg Gunnarsdóttir skrifar
Vegna greinar Snorra Mássonar
Guðmundur Andri Thorsson skrifar
Ertu á krossgötum?
Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Vísvita villandi fréttaflutningur Morgunblaðsins?
Sigurjón Þórðarson skrifar
Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg?
Gunnar Ármannsson skrifar
Máttur kaffibollans
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar
Hefjum aðildarviðræður við Bandaríkin
Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Eru tengsl milli Úkraínustríðsins og breyttrar stöðu Grænlands?
Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Árið 1975 er að banka
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar?
Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar