Harmageddon

Haukur skoðar heiminn: Uppgjör í undirheimum

Annar þáttur vefsjónvarpsþáttaraðarinnar Haukur skoðar heiminn er með ofbeldisfyllra móti, en í þættinum skyggnist Haukur Viðar Alfreðsson á bak við tjöldin við tökur á slagsmálasenu í kvikmyndinni Borgríki II - Blóð hraustra manna.

„Ég var laminn í klessu fyrir utan bakaríið í Garðabæ þegar ég var í 9. bekk,“ segir Haukur, en hann hefur haft óbeit á ofbeldi síðan þá. Hann ákvað engu að síður að heimsækja vaska bardagakappa úr Mjölni, sem hafa yfirumsjón með senunni, og láta læsa sig inni í búri með einum þeirra.

Tekst Hauki að verjast höggum Mjölnismannsins? Smitast hann af bardagabakteríunni? Þetta kemur í ljós í þættinum, sem sjá má í spilaranum hér fyrir ofan.

Haukur hefur óbeit á ofbeldi og kann ekki að kýla.


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.