Sigfús seldi silfrið út af skuldum 15. nóvember 2013 07:50 Sigfús með medalíuna góðu. Hún er nú í vörslu HSÍ. mynd/vilhelm
Ráðgátan um hver af strákunum okkar hafi selt silfurverðlaun sín frá Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 er leyst. Það var línumaðurinn Sigfús Sigurðsson sem seldi medalíuna sína. "Ég seldi silfrið. Ég gerði það vegna skulda. Það sem ég hef unnið mér inn á íþróttaferlinum verður ekki mælt í medalíum eða bikurum. Árangurinn er mældur í þeirri reynslu og lífi sem ég hef átt," segir Sigfús í ítarlegu viðtali við DV í dag. "Þetta var gríðarlega erfið ákvörðun. Medalían hefur mikið sögulegt gildi og hefur erfðagildi fyrir fjölskyldu mína. Ég sá enga aðra leið út. Þegar búið var að loka á mig hjá bankanum og ég var búinn að fá frest hjá sýslumanni tók ég þessa ákvörðun," segir Sigfús enn fremur í viðtalinu. Sigfús segir að skuldir hafi hlaðist upp þegar ferlinum lauk og hann hafi ekki lengur haft sömu tekjur og hann hafði í atvinnumennskunni. "Ég tók þá erfiðu ákvörðun að í staðinn fyrir að ég yrði gjaldþrota, og yrði að sitja það af mér í þrjú eða fimm ár, að fara með mína medalíu, fékk veð í henni og notaði þann pening til að borga af þessu láni sem var við að falla á foreldra mína. Ég borgaði tveimur klukkutímum áður en ég átti að mæta hjá sýslumanni." Það kemur einnig fram í viðtalinu að HSÍ hafi komið að málum og sé nú með medalíuna. "Ég talaði við formann HSÍ sem fór og náði í medalíuna [úr safnarabúðinni. innsk. blm] og ég er honum mjög þakklátur fyrir það. Medalían er hjá þeim í augnablikinu."
Olís-deild karla Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Fleiri fréttir FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Sjá meira