Sannleikurinn: Sjálfstæðisflokkurinn tapaði í prófkjöri sjálfstæðismanna Andri Þór Sturluson skrifar 17. nóvember 2013 13:58 "Það er ekkert mál að rústa svona aulum í prófkjöri,“ segir Halldór og bætir við að það hafi hann gert án þess að vera með persónuleika.
Kjósendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kusu Halldór Halldórsson til að tapa fyrir Bjartri Framtíð í sveitarstjórnarkosningunum á næsta ári. Halldór hlaut 1.802 atkvæði í fyrsta sætið sem rétt dugar honum til að fá að leiða ósigur sjálfstæðismanna en fylgi flokksins hefur aldrei mælst minna en nú. „Valtaði yfir kellingarnar, það er það sem er mér efst í huga núna,“ sagði Halldór í samtali við fréttastofu er úrslitin voru ljós. „Landsbyggðarlúðinn leiðir í Reykjavík. Það verður slagorðið mitt. Ég hef komið þangað nokkrum sinnum.“ Spurður um hvernig honum lítist á listann eftir prófkjörið segir Halldór að hópurinn sé frekar glataður. „Það er náttúrulega ekki eðlilegt að maður geti bara flutt til Reykjavíkur og hirt efsta sæti í prófkjöri. Það segir mikið um hvað fólkið sem maður var að keppa við er mikið drasl.“ Hann segir að mjög fljótlega muni hann hitta draslið og fara vel yfir stöðuna. „Ég ætla að nýta veturinn vel til að koma mér upp persónuleika.“Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en hún er á Ísafirði.
Harmageddon Mest lesið „Við þurfum að kenna krökkum að taka eiturlyf með öruggum hætti“ Harmageddon Allt öðruvísi útrás hefst Harmageddon Sannleikurinn: Ákæruvaldið reyndi að fá barn dæmt fyrir að svíkjast um að stunda vændi Harmageddon Þetta er ekki úr vísindaskáldsögu Harmageddon Íslendingurinn sem er að slá í gegn í Dexter Harmageddon Styttur Reykjavíkur fá ný heyrnartól Harmageddon Sannleikurinn: Allir fréttamenn merktir varanlega Harmageddon Tónarúm - Mammút Harmageddon „Listamenn eru ekki að græða neitt“ Harmageddon Púlsinn 15.ágúst 2014 Harmageddon