Harmageddon

Linkin Park leika Hybrid Theory í heild sinni

Ómar Úlfur skrifar
Linkin Park lofa góðu stuði á Download næsta sumar
Linkin Park lofa góðu stuði á Download næsta sumar
Hljómsveitin Linkin Park ætlar að leika plötuna Hybrid Theory í heild sinni á Download festival á næsta ári.

Chester Bennington söngvari Linkin Park segir að sveitin hafi lengi spáð í að leika plötuna í heild sinni og að Download sé einmitt rétti staðurinn. Þar sé orkan til staðar enda hátíðin ein virtasta rokktónlistarhátíð heimsins. Sveitin verður aðalnúmerið á laugardagskvöldinu á Download sem fer fram í Donington Park 13. - 15. júní næstkomandi. Rob Zombie og Avenged Sevenfold eru meðal þeirra sem að koma fram.

Hybrid Therory kom út árið 2000 og er af mörgum talið höfuðverk Linkin Park en platan inniheldur m.a smellina Crawling og In The End.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af Linkin Park flytja In The End á tónleikum.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.