Sannleikurinn: Landsþekktir stjórnmálamenn verða á FM957 í vetur Andri Þór Sturluson skrifar 5. nóvember 2013 20:20 Miðvikudagarnir verða málið í vetur.
Nýr útvarpsþáttur, Vaktin, hefur hafið göngu sína á FM957 eftir að Auðunn Blöndal ákvað að minnka við sig vinnu vegna aldurs. Vaktin samanstendur af 11 þjóðþekktum einstaklingum sem Íslendingar elska og verður í loftinu alla virka daga kl. 16 - 18. Þátturinn verður frábrugðinn annarri dagskrá stöðvarinnar að því leyti að á miðvikudögum eru það gamalreyndir stjórnmálamenn sem stýra þættinum. Þeir Birgir Ármannsson, Kjartan Magnússon og Ólafur F. Magnússon verða sprækir við hljóðnemann, til í flipp og sprell eins og þeim einum er lagið, á hverjum miðvikudegi í vetur.Þegar þessar kempur sprella þá hlustar þú. Það er bara þannig.Þeir ætla meðal annars að fræða hlustendur FM957 um stjórnmál en gera það á skemmtilegan hátt. Það verða vísur, gaman- og bransasögur, og ekki má gleyma að eftirhermur Kjartans eru landsfrægar. Auk þess að stýra dagskrárliðum þáttarins munu þeir félagar spila ferska tónlist. „Við stýrum tónlistinni algjörlega og ætlum að spila ferska danstónlist og Hip-Hop. Þannig að þeir sem vilja hlusta á nýja strauma í tónlist í útvarpinu ættu að hlusta,“ segja þeir félagarnir. Það vill enginn missa af Vaktinni - það er bara þannig.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu sem er gegt spræk marr.
Harmageddon Mest lesið Feitlaginn bandarískur umboðsmaður vildi fá hana í rúmið Harmageddon Púlsinn 25.ágúst 2014 Harmageddon Sannleikurinn: Ekki hægt að auglýsa stöðu forstjóra Landspítalans vegna fjárskorts Harmageddon Kanye West biður öryggisverði um að fjarlægja tónleikagest Harmageddon Fannst ekki spennandi að spila Little Talks fimm sinnum á dag Harmageddon Sannleikurinn: Bilun hjá Símanum olli því að þingmenn Pírata misstu samband við stjórnstöð Harmageddon Þingmaður treystir sér ekki til að starfa í banka Harmageddon
Sannleikurinn: Bilun hjá Símanum olli því að þingmenn Pírata misstu samband við stjórnstöð Harmageddon
Sannleikurinn: Bilun hjá Símanum olli því að þingmenn Pírata misstu samband við stjórnstöð Harmageddon