Spáir endalokum breska morgunverðarins Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 30. október 2013 13:07 Til stendur að slaka á reglum um lágmarks sykurmagn í ávaxtahlaupi sem þarf til þess að það megi kallast sulta eða marmelaði.
Breska þingkonan Tessa Munt hefur áhyggjur af því að ný reglugerð um sykurmagn í sultum muni gera út af við hinn víðfræga breska morgunverð. Hefðbundinn morgunverður á Bretlandseyjum er mismunandi eftir svæðum en sultur og marmelaði eru oftar en ekki skammt undan. Til stendur að slaka á reglum um lágmarks sykurmagn í ávaxtahlaupi sem þarf til þess að það megi kallast sulta eða marmelaði. Þessar breytingar eru taldar hafa jákvæð áhrif á efnahaginn en Munt telur að breytingarnar verði til þess að meira verði um þynnri og ódýrari sultur með lægra geymsluþol. „Ég hef áhyggjur af þessu vegna þess að ég held að þetta muni binda enda á hinn hefðbundna, breska morgunverð eins og við þekkjum hann,“ segir Munt í samtali við BBC. „Sulturnar okkar og marmelaðið eru svo mikilvæg og þegar við kaupum eitthvað í búð sem heitir sulta eða marmelaði vitum við nákvæmlega hvað við erum að kaupa.“ Munt telur að í kjölfar breytinganna muni breskar sultur fara að líkjast hinum frönsku og þýsku, eða jafnvel þeim amerísku. „Þær eru ekki jafn litríkar, bragðast ekki eins, og hafa svo sannarlega ekki sama geymsluþol,“ segir Munt áhyggjufull. Talsmaður breska matvælaeftirlitsins vísar þessum áhyggjum þingkonunnar á bug. „Að lækka lágmarkið úr 60 í 50 prósent mun hjálpa breskum framleiðendum, stórum sem smáum, við að selja vörur sínar erlendis. Það mun hafa góð áhrif á efnahaginn og gefa sælkerum um allan heim tækifæri til að njóta ljúffengra breskra sultna.“
Mest lesið „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Viðskipti innlent Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Neytendur Fanney tekur við af Erni hjá Lex Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Þórður Már til Faxaflóahafna Viðskipti innlent Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Viðskipti innlent Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Viðskipti innlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira