Harmageddon

Courtney Love gefur út ævisögu

Ómar Úlfur skrifar
Courtney Love gefur út ævisögu sína í desember
Courtney Love gefur út ævisögu sína í desember
Ein frægasta rokkekkja allra tíma, Courtney Love ætlar að gefa út ævisögu sína á næstunni.

Í bókinni mun Courtney fjalla um sambönd sín við þekkta rokkhunda eins og t,d Trent Reznor úr Nine Inch Nails og Billy Corgan úr Smashing Pumpkins.

Stór hluti ævisögunnar mun fjalla um hjónaband hennar og Kurt Cobain forsprakka hljómsveitarinnar Nirvana. Þau gengu í hjónaband 24 febrúar 1992 og eignuðust dótturina Francis Bean Cobain sama ár. Samband þeirra var alla tíð stormasamt en því lauk eins og frægt er orðið þegar að Cobain tók eigið líf í apríl 1994.

Courtney mun sömuleiðis fjalla um tónlistarferil sinn í bókinni en hljómsveitin hennar Hole átti fína spretti fyrir nokkrum árum.

Bókin kemur út 15. desember 





Mest lesið




×

Mest lesið


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.