Harmageddon

Sannleikurinn: Maria ekki dóttir Sigmundar Davíðs

Andri Þór Sturluson skrifar
Sigmundur segir það af og frá að hann sé faðir róma-barnsins eins og kjaftasagan segir.
Sigmundur segir það af og frá að hann sé faðir róma-barnsins eins og kjaftasagan segir.
Stúlkan sem fannst meðal róma-fólks á Grikklandi, er ekki dóttir Sigmundar Davíðs forsætisráðherra.

Í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni í morgun sagði Sigmundur það af og frá að hann ætti stúlkuna en grimmar kjaftasögur hafa gengið manna á milli þess efnis.

„Loksins fer maður í lítið fimm daga frí og það er ekkert nema skammir og á sama tíma verið að dreifa sögum út um allt að maður sé að eignast börn hér og þar,“ segir Sigmundur, sem segir lítt gaman að vera skotspónn kjaftakerlinga og spunameistara eftir að hann og flokkur hans komst til valda.



Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu  eða svo segir sagan.



×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.