Harmageddon

Kings Of Leon með nýja plötu

Ómar Úlfur skrifar
Kings Of Leon voru léttir við gerð nýju plötunnar
Kings Of Leon voru léttir við gerð nýju plötunnar
Sjötta hljóðverskífa Kings Of Leon heitir Mechanical Bull og kemur út á mánudaginn.

Jared Followill, yngsti Followill bróðirinn,  segir að Mechanical Bull sé óþroskaðasta platan sem að Kings Of Leon hafi tekið upp. Vísar hann þannig til uppátækjanna í hljóðverinu en hrekkir og grín og glens einkenndu víst upptökurnar.

Andrúmsloftið hafi verið miklu léttara en þegar að sveitin tók upp seinustu plötu, Come Around Sundown. Jared viðurkennir að vinnan við þá plötu hafi verið allt annað en skemmtileg. Drykkja og almenn pressa á sveitina hafi skemmt fyrir.

Smáskífulögin Supersoaker og Wait For Me eru byrjuð að hljóma á öldum ljósvakans.

Myndbandið við Supersoaker má sjá hér fyrir neðan.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.