Jón Jónsson segist stefna á Skandinavíu í boltanum og er hættur í tónlist 20. ágúst 2013 20:03 Próteindrykkir og magnesíum olíur eru lykillinn, segja Jón og Björn Daníel.
Knattspyrnumennirnir Björn Daníel Sverrisson og Jón Jónsson úr FH voru í miklu stuði þegar þeir heimsóttu Frosta og Mána í útvarpsþættinum Harmageddon í dag. Hægt er að hlusta á viðtalið hér að ofan. Strákarnir eiga leik í Evrópudeildinni við belgíska liðið Genk í Krikanum á fimmtudaginn og eru fullir tilhlökkunar. Þeir hafa litlar áhyggjur af því auka álagi sem fylgir því að spila í mörgum keppnum á sama tíma og tala um líf knattspyrnumanna í FH sem hálfgert rokkstjörnulíf. Strákarnir fara lofsamlegu orðum um magnesíum olíur og próteindrykki sem þeir fá nóg af í Kaplakrika. Í viðtalinu kemur fram að Jón Jónsson stefni á atvinnumennsku í Skandinavíu og að hann sé hættur í tónlistinni. Hversu mikið mark er á því takandi virðist þó óljóst, en Jón var sem fyrr segir í miklu stuði á X-inu í dag.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Ákæruvaldið reyndi að fá barn dæmt fyrir að svíkjast um að stunda vændi Harmageddon Allt öðruvísi útrás hefst Harmageddon Styttur Reykjavíkur fá ný heyrnartól Harmageddon „Listamenn eru ekki að græða neitt“ Harmageddon Margir miðlar staðfesta að skítugt fólk sé hættulegt Harmageddon Norska krullulandsliðið hlýtur að vera ósigrandi í þessu Harmageddon Eins og djúsí Big Mac með stórum frönskum Harmageddon Dagskrá Nordic Playlist Radio Bar heldur áfram í dag Harmageddon Sannleikurinn: Björt framtíð heimsótti þá sem eiga sér ekki mikla framtíð Harmageddon Óupplýstum æsifréttamanni pakkað saman af pollrólegum dýrafræðingi Harmageddon