Harmageddon

Stelpur lenda illa í netdólgum á Snapchat

Frosti Logason skrifar
Myndum er ítrekað lekið af snapchat á Facebook.
Myndum er ítrekað lekið af snapchat á Facebook.
Á Facebook spretta upp ótal samfélagssíður sem sérhæfa sig í því að leka erótískum og vandræðalegum myndum á netið. 



Þórlaug Ágústsdóttir, netsérfræðingur, varar við þessari uggvænlegu þróun á vefnum.

Ungar stúlkur sem senda kærustum sínum klúr myndbrot á Snapchat forritinu gera sér ekki grein fyrir því að viðtakandi getur hæglega vistað skjáskot sem svo er auðvelt að leka á aðra samfélagsmiðla.



„Ég hreinlega skil ekki að fólk skuli láta hafa sig út í það að vera að taka svona myndir vitandi það hvernig hægt er að nota þetta gegn okkur,“ segir Þórlaug sem leggur áherslu á að fólk brýni fyrir börnum sínum hversu hættulegt þetta geti verið.



Hægt er að hlusta á viðtal við Þórlaugu úr útvarpsþættinum Harmageddon í hljóðbroti hér að ofan og fyrir neðan er umræða um málið úr þættinum Pop Trigger á youtube.



×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.