Bolt að nálgast fyrra form Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. júlí 2013 11:30 Nordic Photos / Getty Images
Usain Bolt hljóp á 9,85 sekúndum á Demantamóti sem fór fram á Ólympíuleikvanginum í Lundúnum í gær. Bolt er núverandi heimsmethafi í 100 m og 200 m hlaupi og var að keppa í fyrsta sinn á leikvanginum síðan á leikunum í Lundúnum í fyrra, þar sem hann vann gull í báðum greinum. Aðeins Tyson Gay hefur hlaupið hraðar á þessu ári en hann féll nýlega á lyfjaprófi og því fær Bolt tímann sinn skráðan sem þann besta á árinu. Bolt sagði reyndar að hann hefði farið illa af stað í hlaupinu. „Það var hræðilegt. Ég held að ég sé bara ryðgaður og að þetta komi með því að taka þátt í fleiri hlaupum. Ég fæ nokkur hlaup á HM í Moskvu og þá kemur þetta,“ sagði Bolt eftir keppnina í gær. „Ég var annars nokkuð stressaður í dag og það í fyrsta sinn í langan tíma. Ég vissi að það yrði mikið af fólki hér og þegar ég sá að leikvangurinn var fullur fann ég enn fyrir sömu orkunni og á Ólympíuleikunum í fyrra. Ég var því nokkuð taugaóstyrkur en ég elska orkuna hér og elska að keppa hér.“ Bandaríkjamaðurinn Michael Rodgers varð annar á 9,98 sekúndum og Nesta Carter frá Jamaíku, sem á næstbesta tíma ársins varð þriðji.
Frjálsar íþróttir Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Fleiri fréttir Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Bergur með tvö Íslandsmet á HM Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sjá meira