Mataræðið skiptir gríðarlega miklu máli Ellý Ármanns skrifar 15. mars 2013 11:45 Hrafnhildur Eva Stephensen næringafræðingur.
Hrafnhildur Eva Stephensen næringafræðingur byrjar með nýtt námskeið hjá Hreyfingu sem ber yfirskriftina Léttara Líf á mánudag. Um er að ræða námskeið fyrir konur sem vilja léttast um 20 kg eða meira.Mataræðið skiptir miklu máli.Segðu okkur stuttlega frá námskeiðinu? Það samanstendur af léttri leikfimi, gönguferðum, fyrirlestrum, fræðslu og stuðningsfundum. Konurnar fá sendan tölvupóst með stuðningi og fræðslu 5x í viku og aðgang að lokuðu heimasvæði með girnilegum heilsuuppskriftum frá Ágústu Johnson. Markmiðið er að hjálpa konunum að tileinka sér nýjan og betri lífsstíl sem eykur lífsþrótt, hreysti og vellíðan.Hrafnhildur Eva Stephensen næringafræðingur.Nú eru margar konur (og karlar) sem eiga erfitt með að byrja í líkamsrækt – hvað ráðleggur þú þeim að gera? Það sem ég myndi ráðleggja þeim er að leita sér aðstoðar og byrja annað hvort á námskeiði eins og Léttara Líf undir handleiðslu fagmanneskju eða hjá einkaþjálfara. Byrja rólega og ætla sér ekki að sigra heiminn á mánuði því góðir hlutir gerast hægt. Markmiðið er alltaf að hafa gaman af.Mataræðið - skiptir það máli og hvað ráðleggur þú konum að gera í þeim málum? Mataræðið skiptir gríðarlega miklu máli í svona lífsstílsbreytingum- þú getur ekki æft af þér slæmt mataræði. Það er í rauninni einstaklingsmiðað hvar vandamálið liggur og hvað hentar hverri og einni. En helstu vandamálin sem ég sé er mikil óregla í mataræði, einhæft mataræði, hugmyndaleysi þegar kemur að fæðuvali. Stuðningur, hvatning og eftirfylgni skiptir hérna mestu máli. Helstu mistökin sem ég sé að konur gera hérna er að ætla sér of mikið, hugsunin verður svona "allt eða ekkert"- þær sprengja sig alveg og brjóta sig síðan niður ef háleitum markmiðum er ekki náð og þetta endar í enn einu átaki sem gengur ekki upp. Þær eru alltaf að leitast eftir þessari eðlilegu tengingu við mat, sem hefur oft tapast. Góðu mataræði fylgir aukin orka og framtakssemi, sem við erum jú öll að leitast eftir.Hér má lesa frábæra reynslusögu af henni Hildi sem er búin að ná ótrúlegum árangri.
Heilsa Mest lesið Lokar hringnum eftir tíu ár erlendis Lífið Bridgespaði seldi í Köldulind á 237 milljónir Lífið Kann sjö tungumál, með fimm háskólagráður og kennir dönsku Lífið Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Tónlist Pósthólfið fylltist eftir að hún auglýsti eftir kærasta í Edduverðlaunaræðunni Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Lífið Dr. Gunni flytur í Fljótshlíðina í faðm Helenu Lífið Minnast Van Der Beek: „Hans verður saknað að eilífu“ Lífið Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Lífið samstarf