Fótbolti

Casillas í hópnum hjá Real á móti United - æfa hjá City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Iker Casillas á flugvellinum í Manchester.
Iker Casillas á flugvellinum í Manchester. Mynd/Nordic Photos/Getty
Iker Casillas, markvörður Real Madrid, verður í leikmannahópi liðsins á móti Manchester United á morgun en liðin spila þá seinni leik sinn í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Old Trafford.

Casillas puttabrotnaði á móti Valencia 20. janúar og hefur ekki spilað með Real-liðinu síðan. Hann er hinsvegar í 24 manna leikmannahópi Jose Mourinho sem ferðaðist til Manchester.

Real Madrid og Manchester United gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á Spáni en Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, hvíldi nokkra lykilmenn í sigurleiknum á móti Barcelona um helgina.

Real Madrid mun æfa á Etihad Stadium, heimavelli Manchester City, í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×