Fermetraverð lækkaði um 10% frá 2008 til 2011 magnusl@frettabladid.is skrifar 21. nóvember 2012 06:00 Ari Skúlason
Fermetraverð húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu lækkaði í öllum hverfum frá 2008 til 2011, í kjölfar bankahrunsins. Talsverður munur er þó á því hve mikið fermetraverðið lækkaði en verðlækkunin er á bilinu 2 til 16%. Þetta leiða í ljós talnagögn sem hagfræðideild Landsbankans birti í Hagsjá í síðustu viku. Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir helstu niðurstöðu nýju gagnanna vera þá að gróin hverfi og hverfi nálægt miðborginni hafi staðið niðursveifluna best af sér. „Það vekur þó einnig athygli í þessum gögnum minnkandi áhugi á miðborginni. Það var mikil stemning fyrir henni á uppgangstímanum og mikil áform til staðar um uppbyggingu enda hækkaði fermetraverð hvergi meira. Áhuginn virðist hins vegar hafa dalað svolítið," segir Ari. Ari segir þó vert að hafa í huga hver kaupendahópur íbúða í sérstökum hverfum er. Þannig sé áhugahópurinn um miðborgina mestmegnis ungt fólk að kaupa sína fyrstu íbúð. „Þessi hópur hefur ekki sama aðgang að lánum og áður auk þess sem eiginfjárkröfur eru hærri þannig að það gæti verið ein skýring á minni áhuga á miðborginni," segir Ari.
Fréttir Mest lesið Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Sjá meira