Minnst 65 látnir eftir árásirnar 14. júní 2012 01:00 skemmdir kannaðar Þessir drengir skoðuðu skemmdirnar sem urðu eftir að bílasprengja sprakk í borginni Kirkuk í gærmorgun. nordicphotos/afp
Að minnsta kosti 65 eru látnir eftir röð sprengjuárása í nokkrum borgum og bæjum í Írak í gær. Árásirnar beindust að mestu að sjíta-múslimum sem minntust þess að átta ár voru liðin frá láti klerksins Imam Moussa al-Kadhim. Sextán sprengjur sprungu víða um landið og auk hinna látnu særðust yfir 200 manns. Fyrsta sprengjan sprakk í bænum Taji, norður af Bagdad, um klukkan fimm í gærmorgun. Sjö létust og tveir særðust. Fjórar fleiri sprengjur sprungu í gærmorgun í höfuðborginni þar sem 25 létust og yfir 70 særðust. Þá spungu tvær bílasprengjur í borginni Hillah, sunnan Bagdad, og lést 21 þar og 53 særðust. Í Karbala, heilagri borg sjíta, létust tveir og í bænum Balad norður af höfuðborginni létust sjö eftir að tvær sprengjur sprungu í bílum. Sjö sprengjur til viðbótar sprungu í gærmorgun annars staðar í landinu. Meðal annars var gerð sprengjuárás á skrifstofur kúrdískra stjórnmálamanna. Dagurinn í gær var sá blóðugasti síðan 5. janúar, en þá létust 78 manns í röð sprenginga sem beindust einnig að sjítum. Árásirnar voru einnig meðal þeirra mannskæðustu síðan bandarískt herlið fór frá landinu. - þeb
Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira