Lækkun á mörkuðum í lok dags 12. júní 2012 04:00 Mariano Rajoy fréttablaðið/AP
Neyðarlán Spánverja frá Evrópusambandinu hefur veitt bæði Spáni og evrusvæðinu öllu aukinn tíma til að takast á við vandamálin sem steðja að. Þetta sögðu spænskir fjölmiðlar í gær, en jafnframt sögðu þeir flestir að neyðarlánið væri aðeins fyrsta skrefið í endurbyggingu hagkerfisins í landinu. Spánverjar óskuðu eftir fjárhagsaðstoð um helgina, til þess að styrkja eiginfjárstöðu spænskra banka sem eru margir hverjir mjög illa staddir. Lánið frá ESB getur numið allt að hundrað milljörðum evra, en nákvæm upphæð verður ákveðin á næstu dögum. Aukinnar bjartsýni gætti á mörkuðum í Evrópu og Asíu í gærmorgun, en það entist ekki út daginn og höfðu flestar vísitölur lækkað við lokun markaða. Sérfræðingar vöruðu við því í gær að neyðarlán til Spánverja þýddi ekki lausn á skuldavanda Evrópu. Þá hafa verið viðraðar áhyggjur af því að spænskum stjórnvöldum muni reynast þessi aukna skuldabyrði erfið og þau muni eiga erfitt með að borga lánið til baka. Sjónir manna beinast nú á nýjan leik að Grikklandi, þar sem kosið verður að nýju í lok næstu viku. Mögulegt er að Grikkir kjósi yfir sig stjórn sem vilji yfirgefa myntsamstarfið, og þá er mögulegt að fleiri lönd fylgi á eftir. Þá óttast menn einnig ástandið á Ítalíu, sem gæti orðið næsta landið til þess að biðja um fjárhagsaðstoð sambandsins. - þeb
Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira