Mig langaði að spyrja þig um eitt, því þú segir að við fyrstu samfarir séu leggöng oft þröng vegna órofins meyjarhafts. Ég varð snemma mjög áhugasöm um þetta fyrirbæri, meyjarhaftið, því fátt held ég að hafi valdið konum meiri vandræðum í gegnum aldirnar.
Ég rakst af tilviljun á bækling á netinu gefinn út af sænska heilbrigðisráðuneytinu. Þar var staðhæft að meyjarhaftið væri mýta. Þar stóð að í leggöngum kvenna væri vissulega líkamsvefur, en hann væri hringlaga og lægi ekki þvert yfir leggöngin eins og haft. Upp á ensku var þetta kallað vaginal corona. Þar af leiðandi væri ekki hægt að rjúfa meyjarhaftið, og blæðingar við samfarir stöfuðu því alltaf af því að konan væri ekki reiðubúin.
Ef þetta er satt, gætirðu þá notað stöðu þína til að breiða þessa vitneskju út? Það væri svo frelsandi fyrir ungar stelpur að vita að meydómur er ekkert áþreifanlegra fyrirbæri en sveindómur og að þær geta gert nákvæmlega sömu kröfur og strákar til þess að fyrsta skiptið þeirra sé sársaukalaust og ánægjulegt.
Svar: Ég þakka hólið. Ég las bæklinginn sem þú vísar í og vissulega er það mjög mikilvægt að fræða ungar konur og drengi um staðreyndir málsins.
Meyjarhaftið er himna sem getur verið mismunandi í laginu og hulið leggangaopið að hluta til eða alveg. Himnan getur gefið eftir og teygst en hún getur líka auðveldlega rofnað við áreynslu eins og að hjóla. Þegar á unglingsaldur er komið þá er því oft lítið eftir af henni. Himnan getur verið misþykk og sumar fæðast alls ekki með hana.

Ég þakka ábendinguna, kæri lesandi og ætla að sjá til þess að þessi fræðslumoli komist til skila í þeirri kynfræðslu sem ég sinni.