Neita sök og ætla að verjast 5. maí 2012 01:00 Í Guantanamoflóa Enn eru nærri 170 fangar í búðunum og hafa sumir verið þar í meira en áratug, án þess að koma fyrir dómara. nordicphotos/AFP
Í herstöð Bandaríkjamanna á Kúbu hefjast í dag réttarhöld yfir fimm föngum sem sakaðir eru um að hafa skipulagt árásirnar á Bandaríkin þann 11. september 2001. Í yfirheyrslum, sem að hluta fóru þannig fram að fangarnir voru beittir pyntingum, hafa þeir allir játað sekt og jafnvel sagst stoltir af afrekinu. Lögmaður eins þeirra segist hins vegar telja að þeir ætli allir að lýsa sig saklausa í dag og verjast þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um að þeir taki ekki mark á dómstólunum og kjósi hvort eð er dauðann. „Hann hefur engan hug á því að lýsa sig sekan," sagði lögmaðurinn, Jim Harrington, um skjólstæðing sinn, Ramzi Binalshibh. „Ég held að enginn þeirra ætli að lýsa sig sekan." Réttarhöld í máli þeirra voru langt komin í undirbúningi sumarið 2008 þegar Barack Obama Bandaríkjaforseti reyndi að fá fangana flutta til Bandaríkjanna þar sem þeir kæmu fyrir borgaralega dómstóla eins og aðrir sakamenn. Obama fékk ekki stuðning til þess á þingi, en fyrirkomulagi dómnefnda á Kúbu var breytt nokkuð. - gb
Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira