Valskonur sigurstranglegri Henry Birgir Gunnarsson skrifar 25. febrúar 2012 07:30 Annað hvort Hrafnhildur Skúladóttir Val eða Ester Óskarsdóttir ÍBV lyftir bikarnum í dag. Mynd/Stefán
Hið spræka lið ÍBV fær það verðuga verkefni að takast á við hið ógnarsterka lið Vals í úrslitum Eimskipsbikars kvenna en leikurinn hefst klukkan 13.30. Það er valinn maður í hverju rúmi í liði Vals en ÍBV hefur verið að sækja í sig veðrið í vetur og mun örugglega selja sig dýrt í Höllinni í dag. „Við höfum lent í vandræðum með þær í tvígang í vetur en erum að nálgast þær þannig að þetta verður hörkuleikur," sagði Ester Óskarsdóttir, fyrirliði ÍBV, borubrött fyrir leik. „Útlendingarnir í okkar liði styrkja okkur mikið. Það var ekkert annað í stöðunni en að fá þær. Valskonur hafa meiri reynslu en við og við þurfum að passa upp á spennustigið. Þetta er nánast landsliðið samt á móti ÍBV enda átta landsliðsmenn í Val á meðan við eigum einn leikmann sem hefur spilað með landsliðinu. Það er samt allt hægt í bikar og það vitum við." Hrafnhildur Skúladóttir, fyrirliði Vals, veit sem er að þeim er spáð öruggum sigri. „Mér finnst við vera með besta liðið og við töpum sjaldan. Við förum inn sem stóra liðið en þetta er bikarleikur og við ætlum okkur að vinna," sagði Hrafnhildur sem á von á sterku liði ÍBV. „ÍBV hefur verið að styrkja sig og eru sterkari. Við vitum að þetta verður erfiður leikur og við verðum að vera tilbúnar."
Olís-deild kvenna Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira