Grískur harmleikur 22. febrúar 2012 04:30 mynd/ afp.
Margir önduðu léttar eftir að víðtækri endurskipulagningu skulda og efnahags Grikklands lauk á dögunum eftir þriggja ára karp. Niðurstaða Grikklands, lánardrottna þeirra, Seðlabanka Evrópu, ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er auðvitað gríðarlega íþyngjandi fyrir almenning í Grikklandi, sem sýpur nú seyðið af flónsku og undirferli þeirra sem hafa stýrt ríkinu síðustu árin og áratugina. Í ljósi stöðunnar er þó fátt annað sem kemur til greina. Skuldirnar eru til staðar, en fjármunir ekki og gjalddagi nálgast óðfluga. Greiðslufall er valmöguleiki, en varla fýsilegri en nýja samkomulagið, þar sem það fæli í sér enn meira atvinnuleysi, fleiri gjaldþrot og almenna félagslega nauð, að ótöldum áhrifunum sem það gæti haft á fjármálalíf Evrópu og heimsins. Lánardrottnar Grikklands hafa samið um allt að 70% niðurfærslu skulda á næstu árum og áratugum, til að landið muni geta ráðið við skuldir og ESB, AGS og Seðlabanki Evrópu hafa lánað Grikklandi 130 milljarða evra til viðbótar við þá 110 milljarða sem Grikkland hefur þegar fengið að láni. Svik fyrri stjórna og getuleysi síðustu stjórnar hafa eðlilega skapað vafa um efndir á samningum og því eðlilegt að samkomulagið feli í sér einhvers konar eftirlit til að tryggja að allt fari ekki aftur í sama farið. Þau sem bera hitann og þungann af öllu þessu máli er hins vegar gríska þjóðin og hennar er harmurinn og hún má ekki gleymast. Aðhaldsaðgerðirnar sem fram undan eru verða allar á herðum almennings, sem hefur verið dreginn í gegnum svaðið í umræðu síðustu missera. Grikkir hafa verið sagðir latir, sérhlífnir skattsvikarar, en eins og með allar slíkar alhæfingar byggjast þær á samspili fordóma og vanþekkingar. Rannsókn frá árinu 2009 sýnir að Grikkir unnu að meðaltali 40 stundir á viku sem var meira en tíðkast í ESB og umtalsvert meira en í löndum eins og Frakklandi, Þýskalandi og Hollandi. Stærsta vandamálið er að stóreignafólk og fyrirtæki svíkjast undan samfélagslegri skyldu sinni og ábyrgð með undanskotum frá skatti í stað þess að leggja sitt af mörkum til að byggja þjóðfélagið upp að nýju. Margir kerfisbundnir þættir liggja að baki núverandi ástandi þar sem helst má kenna um lýðskrumurum sem segja allt og gera allt til að komast til valda og sitja þar sem lengst. Vera Grikklands í evrusamstarfinu gerði stjórnmálamönnum svo auðveldara um vik að breiða yfir raunveruleg vandamál þar til að orðið var um seinan. Nú, þegar samkomulag um næstu skref er í höfn, ríður á að stjórnmálamenn í Grikklandi sýni dug og forgangsraði með þeim hætti í ríkisfjármálum að hægt sé að stuðla að uppbyggingu og endurreisn Grikklands án þess að reisn borgaranna sé fyrir borð borin.
Fréttir Mest lesið Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira