Heitstrenging Jay-Z Gerður Kristný skrifar 23. janúar 2012 06:00 Í síðustu viku bárust þau tíðindi um heimsbyggðina að bandaríski rapparinn Jay-Z hefði svarið þess dýran eið að hætta að kalla konur „tíkur". Ástæðan fyrir þessari róttæku viðhorfsbreytingu var sú að honum og eiginkonu hans, söngkonunni Beyoncé, varð dóttur auðið. Ábyrgðarkenndin sem hvolfdist yfir kappann þegar snótin, sem gefið var nafnið Blue Ivy Carter, kom í heiminn hafði víst þessar gleðilegu afleiðingar. Samkvæmt frétt Vísisvefsins af heitstrengingu Jay-Z settist hann niður og orti ljóð í tilefni fæðingarinnar þar sem hann heitir því að bregða ekki orðinu „tík" fyrir sig aftur. Það hefur verið ort af minna tilefni og heitstrenging Jay-Z virtist svo sannarlega vera lóð – eða réttara sagt ljóð á vogarskálar aukinnar manngæsku í heiminum. „Hann segist vera breyttur maður og hefur lítið álit á þeim sem ætla að taka sér orðið í munn í framtíðinni," segir í frétt Vísisvefsins. Því miður mátti ætla að harla margir ættu þá eftir að fá á baukinn, enda hefur tíkin dillað skotti sínu býsna lengi í bandarískum rapptextum. Merkilegt samt að engin önnur kostakona í lífi Jay-Z skyldi hafa hrundið þessum sinnaskiptum af stað hjá honum. Datt mér þá helst í hug móðir hans blessunin eða hin hæfileikaríka eiginkona hans, hún Beyoncé, sem getur leikið, dansað, sungið og samið tónlist. Ég reyndi að finna ljóð Jay-Z á netinu en tókst það því miður ekki. Því varð ég að geta mér til hvernig skáldskapur hans gæti hljómað á íslensku. Helst kom mér í hug að það hefði getað verið á þessa leið: „Þú ert engri lík / og ekki ertu tík, / með augu eins og Bambi. / Nú hætti ég öllu þambi / og dópi sturta niður. / Ást mín er sem fiður / í mjúkri svanasæng / og hlýjar þér um nætur. / Þegar þú ert hrædd og grætur / fer ég óðara á fætur / tek þig í fangið og hugga, / rugga, / draugum burtu stugga. / Gleði mín er slík / að nú finnst mér engin kona tík." Þar sem ég ráfaði um á netinu í leit að kveðskap Jay-Z rakst ég á tilkynningu þess efnis að fréttin af sinnaskiptunum hefði bara verið uppspuni. Rapparinn kannast ekkert við að hafa nokkurn tímann hugsað sér að hætta að kalla konur tíkur. Hann hyggst því halda áfram að láta það eftir sér blási andinn honum það í brjóst. Þar fór það. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gerður Kristný Mest lesið Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir Skoðun
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun