Byssubardagi í Breiðholtinu 20. desember 2012 11:30 MYNDIR / SAGAFILM
Þáttaröðin Pressa III kemur út á VOD leigur Vodafone, Skjásins og á filma.is í dag, fimmtudaginn 20. desember. Þáttaröðin var sýnd á Stöð 2 og fór síðasti þátturinn í loftið sunnudagskvöldið 18. nóvember síðastliðinn. Aðdáendur seríunnar geta því tekið gleði sína um jólin og horft á blaðakonuna Láru klöngrast í gegnum lífið. Serían fékk afskaplega góðar viðtökur á Stöð 2 og greinilegt að Íslendingar hafa smekk fyrir Láru og aðstæðunum sem hún lendir í. Alls eru sex þættir í seríunni. Nú er Lára flutt heim frá Kanada en faðir hennar þjáist af krabbameini. Alda, dóttir hennar, er orðin fjórtán ára gömul og fer aftur í gamla skólann sinn en Lára byrjar að taka vaktir á Póstinum á meðan ástand föður hennar er enn í óvissu.Sara Dögg fer með hlutverk Láru.Lára er komin með nóg af því að fjalla um harðsvíraða glæpamenn og vill frekar fjalla um efni í léttari kantinum. En fljótlega fara hlutir að gerast. Filipeysk kona brennur inni á veitingastað sem kveikt var í. Böndin berast að samtökum sem lýsa yfir andúð gegn innflytjendum í myndböndum sem er dreift á netinu. En ekki er allt sem sýnist.Björn Thors leikur alræmdan handrukkara.Alda er ekki lengur neinn engill. Hún er komin með kærasta sem er heldur betur í vafasömum félagsskap. Geysimikill hasar er í seríunni og voru nokkrar senur til dæmis teknar upp á húsþaki í Breiðholtinu.Alda er komin í slæman félagsskap.Með aðalhluverk fara Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Þorsteinn Bachmann, Arndís Hrönn Egilsdóttir og Björn Thors en leikstjóri er Óskar Jónasson. Þess má geta að fyrstu tvær seríurnar af Pressu eru líka fáanlegar á fyrrgreindum VOD leigum.Hasar uppi á þaki.Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.
Menning Mest lesið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Robert Wilson er látinn Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira