Gylfi tryggði Tottenham jafntefli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2012 16:15 Mynd/AFP
Gylfi Þór Sigurðsson opnaði markareikning sinn í Evrópukeppni hjá Tottenham í kvöld þegar hann tryggði sínum 1-1 jafntefli á útivelli á móti slóvenska liðinu NK Maribor í 3.umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Tottenham er nú búið að gera jafntefli í þremur fyrstu leikjunum í Evrópudeildinni og er í 3. sæti riðilsins einu stigi á eftir NK Maribor. Tottenham var með góð tök á leiknum fyrstu 40 mínúturnar og allt leit út fyrir þægilegan sigur. Gylfi fékk færi strax í upphafi og Tottenham-liðið var mun meira með boltann en tókst ekki að skora. Það var hinsvegar NK Maribor sem skoraði fyrsta mark leiksins á 42. mínútu. Dejan Mezga labbaði þá í gegnum Tottenham-vörnina og kom boltanum á Robert Beric sem skorað í tómt markið. Gylfi jafnaði leikinn á 58. mínútu en hann fylgdi þá á eftir og skoraði af stuttu færi eftir að Jermain Defoe hafði skotið í varnarmann. Gylfi átti mikinn þátt í undirbúningi marksins. Clint Dempsey kom inn á fyrir Gylfa á 75. mínútu en Tottenham tókst ekki að bæta við marki og tryggja sér sigurinn.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Handbolti Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Enski boltinn Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Enski boltinn Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Fleiri fréttir Kaupir ný gleraugu á öryggisvörðinn og fær styttra leikbann Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Elfsborg að kaupa Júlíus Magnússon Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun West Ham búið að bjóða Potter starfið Orðaður við íslenska landsliðið en þykir líklegur til að taka við Molde „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Messi skrópaði í Hvíta húsið Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal AC Milan tók Ofurbikarinn fyrir framan nefið á nágrönnum sínum Hvíldu stórstjörnurnar sínar en brunuðu áfram í bikarnum Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Keane tekur við sigursælasta félagi Ungverjalands Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Hlín endursamdi við Kristianstad Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Fékk að halda áfram að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt Gerrard að verða afi Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd Sjá meira