iPhone 5 gerður úr fljótandi málmi - kynntur í október 20. apríl 2012 21:30 Því miður tengist "málmlögurinn“ ekki Terminator kvikmyndunum. mynd/AP
Tólið er alfarið gert úr „málmlegi."mynd/TechCrunch Talið er að nýjasti snjallsími Apple verði gerður úr nýstárlegri efnablöndu sem kallast „Liquidmetal." Það var tæknifréttamiðill í Suður-Kóreu sem greindi frá þessu í gær. Miðillinn hefur eftir innanhúsmanni í verksmiðju Apple að efnablandan sé samsett úr sirkon, títaníum, nikkel og kopar. Þessi blanda af frumefnum myndar þennan einstaka mál. Efnið hefur fengið nafnið „Liquidmetal" eða „málmlögur." Apple tryggði sér einkaleyfi á málminum árið 2010. Síðan þá hefur fyrirtækið þróað aðferðir til vinna með málminn. Apple hefur nú þegar notað efnablönduna í raftækjum sínum - þar á meðal í iPhone 4S. Áhugasamir iPhone eigendur geta kynnt sér málminn með því draga fram SIM-korta verkfærið sem fylgdi símanum en tólið er alfarið gert úr „málmlegi." „Málmlögur" er afar léttur málmur og er áferð hans sögð líkjast gleri. Þá er hann einnig léttur og gríðarlega sterkbyggður. Talið er að Apple sé nú reiðubúið að hefja framleiðslu á raftæki sem er gert úr þessari athyglisverðu efnablöndu. Það gefur þó auga leið að ytri grind farsíma geti seint verið gerð úr heilsteyptum málmi enda heftir málmur farsímasamband. Litlar upplýsingar hafa borist frá Apple um nýja snjallsímann. Talið er að fyrirtækið sé enn að vinna að hönnun símans og að hann verði ekki opinberaður fyrr en í október á þessu ári. Hægt er að lesa nánar um málið á tæknifréttasíðunni TechCrunch.
Mest lesið Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira