Næsti leikur Iniesta verður hans 400. fyrir Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2012 14:45 Andres Iniesta. Mynd/Nordic Photos/Getty
Andres Iniesta vantar nú aðeins einn leik upp á að spila 400 leiki fyrir Barcelona og tímamótaleikurinn gæti komið á móti Levante í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. Iniesta er 27 ára gamall en lék sinn fyrsta leik fyrir Barcelona í október 2002. Það var Louis van Gaal sem gaf Iniesta fyrsta tækifærið þegar leikmaðurinn var aðeins 17 ára gamall en hann hefur síðan orðið lykilmaður hjá Barca sem og spænska landsliðinu. Iniesta er nú kominn inn á topp tíu listann yfir flesta leiki fyrir Barcelona. Iniesta er ekki eini núverandi leikmaður Barcelona sem er inn á topp tíu listanum því Xavi er efstur með 621 leik, Carles Puyol er í 2. sæti með 552 leiki og markvörðurinn Victor Valdes er fjórði með 452 leiki. Iniesta hefur spilað 266 leiki í spænsku deildinni, 77 leiki í Meistaradeildinni, 40 bikarleiki, þrjá leiki í UEFA-bikarnum, tvo leiki í Súperbikar Evrópu, sex leiki í Meistarakeppninni á Spáni og loks fimm leiki í Heimsmeistarakeppni félagsliða. Andres Iniesta hefur spilað 22 leiki í spænsku úrvalsdeildinni í vetur og Barca hefur náð í 58 af 66 stigum í boði (88 prósent). Barcelona hefur ekki tapað deildarleik með Iniesta síðan í september 2010 og er hann því búinn að leika 54 deildarleiki í röð án þess að vera í tapliði.
Spænski boltinn Mest lesið Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Fótbolti Uppgjör: Ísland - Portúgal 62-60 | Frábær sigur Íslands Körfubolti PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Fótbolti Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Fótbolti Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Fótbolti Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Fótbolti Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Isak sást á æfingu Liverpool Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Neymar ekki valinn í landsliðið en bæði Thiago og Endrick í hópnum Guðrún áfram í undanúrslitin með Hammarby Vona að þeir leysi vandamálin og Íran verði með á HM Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Sjá meira