Viðskipti erlent

Nærri fjórði hver maður án vinnu á Spáni

Frá Spáni. Spánverjar reyna nú allt til þess að efla efnhaginn hjá sér, m.a. með auglýsingum þar sem ferðamenn eru hvattir til þess að koma til landsins.
Frá Spáni. Spánverjar reyna nú allt til þess að efla efnhaginn hjá sér, m.a. með auglýsingum þar sem ferðamenn eru hvattir til þess að koma til landsins.
Efnahagsvandinn á Spáni er djúpstæður, og er síst að minnka, samkvæmt hagtölum um atvinnuástandið í landinu sem hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti í gær. Samkvæmt þeim mælist atvinnuleysið tæplega 24 prósent, eða nærri því að fjórði hver maður á vinnualdri sé án vinnu.

Samtals eru tæplega 4,8 milljónir manna án vinnu, og jókst fjöldinn um tæplega 40 þúsund frá því í febrúar. Þau störf sem tapast hafa eru aðallega úr þjónustugeiranum, en þar hefur verið mikill samdráttur, ekki síst þar sem sífellt stærri hópur hefur minna á milli handanna en áður.

Spænsk stjórnvöld freista þess nú að ná tökum á vanda ríkissjóðs með stórfelldum niðurskurði. Gert er ráð fyrir því að skorið verði niður um 35 milljarða evra, liðlega sex þúsund milljarða króna, á þessu ári. Óttast er að þessar aðgerðir muni dýpka vandamálin á atvinnumarkaði enn frekar, þar sem þessum aðgerðunum muni fylgja umfangsmiklar uppsagnir og launalækkanir.

Til framtíðar vonast stjórnvöld þó til þess, að betri staða ríkissjóðs muni hjálpa Spáni að ná efnahagslegum vopnum sínum á nýjan leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×